Tígull frá Gýgjarhóli seldur

  • 17. ágúst 2012
  • Fréttir
Tígull frá Gýgjarhóli seldur

Tígull frá Gýgjarhóli er seldur til Þýskalands en hann mun fara út í mars 2013. Nýji eigendandinn er hlutafélagið Tígull Gbr, en í tilefni af Landsmóti 2012 í Reykjavík ákvað Peter Langenbach að safna saman áhugasömum ræktendum í þeim tilgangi að stofan hlutafélag í kringum kaupin á Tígli. Varð svo úr að átta þýskir ræktendur festu kaupin á hestinum nú í sumar.

Tígull er undan Stíganda frá Sauðárkróki (8,15) og Spætu frá Gýgjarhóli (7,79). Tígull er hæst dæmdi klárhestur í heimi en hann hlaut 8,60 í aðaleinkunn, þar af 8,65 fyrir sköpulag og 8,56 fyrir hæfileika. Tígull hlaut 9,5 fyrir tölt og brokk og 9,0 fyrir stökk, vilja og geðsla, fegurð í reið, höfuð, samræmi og prúðleika. 

Tígull er komin með heimasíðu www.tigull.de og er þegar farið að taka við pöntunum fyrir sumarið 2013.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link