,,Tilfinningin ólýsanleg“

  • 30. október 2020
  • Fréttir

Daníel Gunnarsson á hörkuspretti á Einingu frá Einhamri Ljósmynd: Bára Másdóttir

Viðtal við Daníel Gunnarsson landsliðsknapa

Daníel Gunnarsson er nú valinn í íslenska landsliðið í fyrsta skipti en hann er 33 ára gamall knapi úr Hestamannafélaginu Sleipni sem stundar nú nám við Háskólann á Hólum.

,,Það er ólýsanleg tilfinning að vera kallaður í landsliðshóp  og ég er eiginlega ekki búinn að átta mig almennilega á þessu ennþá finnst þetta allt hálf óraunverulegt. Diddi hringdi í mig fyrir hálfum mánuði síðan og tilkynnti mér um þetta. Ég fagnaði þessu með því smala inn graðhestunum og byrjaði að temja þá hér á Miðsitju þar sem ég bý núna og starfa meðfram náminu á Hólum.

Daníel hefur gert það gott í skeiðgreinum á yfirstöðnu tímabili og þá sérstaklega á hryssunni Einingu frá Einhamri, sem hann stefnir með á HM. Besti tími þeirra í sumar var 21,75 sekúnda í 250 metra skeiði og 14,40 í 150 metra skeiði. Þá fóru þau 100 metrana hraðast á 7,63 sekúndum. Hæsta einkunn þeirra í gæðingaskeiði var 7,79.

Það er ljóst að íslenska liðið ætlar sér stóra hluti á næsta HM í skeiðgreinum líkt og á því síðasta þar sem við tókum sigur í öllum skeiðgreinum.

Margir landsliðsknapar eru með fljóta hesta í sínu vopnabúri og því ætti að vera auðvelt að stilla upp sterku liði á þeim vængnum. Auk þess að núverandi heimsmeistarar í skeiðgreinum þeir
Bejnamín Sandur Ingólfsson, Konráð Valur, Guðmundur Björgvinsson og Teitur Árnason eiga sæti í liðinu.

Daníel Gunnarsson mynd: LH

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link