Tilhlökkun með ný stofnað hestamannafélag

  • 5. júlí 2021
  • Fréttir

Stofndagur sameinaðs hestamannafélags í uppsveitum Árnessýslu var 1.júlí síðastliðinn. Í tilefni þess hittust allar stjórnir félaganna sem undirgangast sameininguna á Geysi í Haukadal þar sem málefni nýs félags voru rædd og hver fyrstu skrefin yrðu að formlegri stofnum félagsins um áramót.

Almenn ánægja er með þetta framfaraskref sem hestamannafélögin Logi, Smári og Trausti hafa nú stigið og mikil tilhlökkun í mannskapnum fyrir komandi tímum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link