Tölt fyrir LÍF – skráning á miðvikudag

  • 20. mars 2011
  • Fréttir
Tölt fyrir LÍF - skráning á miðvikudag

Kvenna- og styrktarmót hafa verið vinsæl og velsótt. Eitt slíkt, Lífstöltið, verður haldið sunnudaginn 27. mars nk. í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ.

Lífstöltið er töltmót fyrir konur til styrktar LÍFI – styrktarfélagi kvennadeildar Landsspítalans Háskólasjúkrahúss.

Keppt verður í fjórum flokkum á mótinu, byrjendaflokk, flokk minna og meira keppnisvanra kvenna og opnum flokk.

Skráning á mótið mun fara fram í Harðarbóli miðvikudaginn 23. mars kl. 19-22 og í síma 566-8282. Skráningargjöld eru frjáls en þó að lágmarki 1000 kr. sem mun renna til LÍFs.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link