Landsmót 2024 Töltveisla í kvöldsólinni á Hellu

  • 8. júlí 2022
  • Fréttir
Árni Björn hampar töltbikarnum fjórða Landsmótið í röð

Árni Björn Pálsson vann töltið á Landsmóti fjórða mótið í röð. Þetta er annað Landsmótið í röð sem hann vinnur það á Ljúfi frá Torfunesi en áður hafði hann unnið það tvisvar á Stormi frá Herríðarhóli.

„Þetta er þessi sigurtilfinning sem maður lifir á og stefnir að. Þetta eru laun erfiðisins. Það er mikil vinna að þjálfa hest til afreka. Þetta er uppskerumómentið.“ segir Árni Björn þegar blaðamaður hitti á hann ný kominn úr braut.

„Áhuginn hjá mér liggur svo mikið í töltkeppninni. Hann hefur alltaf gert það fá því ég var krakki. Mér finnst þessi grein, fyrir mig, vera merkilegri en aðra greinar.“ bætir hann við. Ljúfur frá Torfunesi er í eigu Sylvíu Sigurbjörnsdóttur unnustu Árna en Árni gaf Sylvíu hann í þrítugsafmælisgjöf á sínum tíma.

Hér fyrir neðan eru niðurstöður úr töltinu en þetta var sannkölluð veisla og gerði Jóhann Margrét Snorradóttir harða atlögu að þeim félögum. Endaði hún önnur á Bárði frá Melabergi með 8,94 í einkunn. Viðar Ingólfsson endaði þriðji með 8,39 í einkunn.

A úrslit – Tölt – Niðurstöður
Sæti Knapi Hross Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Árni Björn Pálsson Ljúfur frá Torfunesi Fákur 9,17
2 Jóhanna Margrét Snorradóttir Bárður frá Melabergi Máni 8,94
3 Viðar Ingólfsson Þór frá Stóra-Hofi Fákur 8,39
4 Leó Geir Arnarson Matthildur frá Reykjavík Geysir 8,33
5 Teitur Árnason Taktur frá Vakurstöðum Fákur 8,28
6 Kristín Lárusdóttir Strípa frá Laugardælum Kópur 8,00

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link