Trausti Þór í Hestablaðinu

  • 24. október 2012
  • Fréttir
Trausti Þór Guðmundsson er einn reyndasti knapi og reiðkennari landsins. Hann kynnti Töltfimi Hestablaðsins og Félags tamningamanna á Landsþingi LH.

Trausti Þór Guðmundsson er einn reyndasti knapi og reiðkennari landsins (sjá Reiðskóla Trausta HÉR). Hann kynnti Töltfimi Hestablaðsins og Félags tamningamanna á Landsþingi LH. Í viðtali í Hestablaðinu sem kemur út á morgun, fimmtudaginn 25. október, er spjallað við Trausta Þór um reiðmennsku og þróun hennar hér á landi. Hann segir meðal annars:

„Það var ekki upphaflegur tilgangur íþróttakeppninar að hampa ýktum fótaburði og keyra á rými og ofsa hraða. Heldur var hún hugsuð sem keppni í reiðmennsku, eins og ég lýsti áðan, þar sem höfð eru að leiðarljósi þjálfunarstig klassískrar reiðmennsku eins og þau hafa verið skilgreind hjá þróuðum hestaþjóðum, svo sem Þjóðverjum, Frökkum, Spánverjum og Portúgölum….“

„Það er nánast einróma álit þeirra sem eru í undirbúningshópnum að Töltfimin sé tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðhorf fólks til keppni í reiðmennsku. Og um leið tækifæri fyrir Ísland til að vera í fararbroddi í þróun hestvænnar og góðrar reiðmennsku. Ég held að flestir þeir sem hafa sett sig inní málið séu sammála um að við séum farin að gera óraunhæfar og í raun óviðeigandi kröfur hvað varðar ýktan fótaburð og rosa hraða í íþróttakeppninni,….“

„Eftir tvær prufukeyrslur á Töltfiminni hér heima og eina í útlöndum er ég alveg sannfærður um að hún sé tæki til að meta hvort hestur sé í raun rétt og vel þjálfaður samkvæmt áðurnefndum þjálfunarskala. Um leið er þetta hestvæn, skemmtileg og áhorfendavæn keppnisgrein, og áskorun og tækifæri fyrir metnaðarfulla reiðmenn.“

Lesið viðtal við Trausta Þór Guðmundsson um reiðmennsku í Hestablaðinu. Hægt er að kaupa áskrift í síma 511-6622

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link