Tumi á stórsýningu í Svíþjóð-
Tumi frá Stóra-Hofi mun koma fram í fyrsta skipti með nýjum eiganda sínum Matildu Rolf á Alþjóðlegri hestasýningu í Stokkhólmi sem fram fer næstu helgi.
Sýningin er ein sú stærsta í heimi og er haldin Ericsson Globe höllinni og koma þar fram stórar stjörnur hestamennskunnar, bæði til sýningar og keppni.
Í ár munu níu keppendur á íslenskum hestum spreyta sig í keppni og er einn skráðra keppenda hinn ungi eigandi Tuma frá Stóra-Hofi, Matilda Rolf. Mun hún etja kappi við Reyni Aðalsteinsson á Blæju frá Skáney, Sigfús Sigfússon á Leikni från Övergran, Hjalta Guðmundsson á Reyni frá Hólshúsum, Ylvu Hagander á Lenju frá Stykkishólmi, Johan Häggberg á Sigurros från Lilla Årnebo, Niels Christian Larsen á Hrynjandi fra Fagereng, Dorte Rasmindsen á Gumi fra Strandarhöfdi og Elise Lundhaug á heimsmeistaranum fyrrverandi Hvini frá Holtsmúla.
Nánari upplýsingar um stórsýninguna má nálgast hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH