Tuttugu knapar heiðraðir hjá Fáki

  • 30. nóvember 2011
  • Fréttir
Tuttugu knapar heiðraðir hjá Fáki

Hestamannafélagið Fákur bauð til veislu sl. laugardagskvöld og fagnaði gróskumiklu ári og fjölbreyttu félagsstarfi með velunnurum félagsins.

“Veisluborðið svignaði undan margrétta kræsingum sem Jón Helgi kokkur matreiddi ásamt aðstoðarkokkum. Elli Sig var veislustjóri og sagði sögur og gerði grín af vel völdum Fáksfélögum, enda ef það er eitthvað sem Elli kann næstum eins vel og að leggja hest á skeið, þá er það að segja gamansögur.

Gísli Einarsson (Út og suður) kom og skemmti veislugestum. Gísli fór á hreinum kostum og má með sanni segja að salurinn stein lá (hjá öllum hlaupagæslumönnum) og veltist um af hlátri.

Félagsmálatröll Fáks hlýtur sá félagsmaður Fáks sem hefur lagt mikla vinnu til félagsins og í ár var ákveðið að heiðra tvær konur sem eru mjög duglegar í sjálfboðavinnu og alltaf jákvæðar og léttar í lund. Þetta eru þær Ásta Björnsdóttir og Þórey Sigurbjörnsdóttir en þær voru bæði í mótanefnd og æskulýðsnefnd. Ekkert félag er sterkara en félagsmenn þess og það er heiður fyrir Fák að fá að heiðra öfluga félagsmenn sem alltaf eru tilbúnir að hjálpa til og leggja hönd á plóg. Til hamingju stelpur og vonandi fær Fákur að njóta starfskrafta ykkar sem lengst.

Að venju voru afreksknapar Fáks heiðraðir en innan raða Fáks er margir af fremstu og efnilegustu knöpum landsins. Einnig eru margir knapar sem banka á dyrnar og vilja komast í þennan hóp og hvetjum við þá til dáða en verðlaunuðum þá sem náðu góðum árangri á keppnisbrautinni í ár fyrir góðan keppnisárangur (í stafrófsröð);

  • Agnes Hekla Árnadóttir
  • Anna Valdimarsdóttir
  • Arna Ýr Guðnadóttir
  • Árni Björn Pálsson
  • Drífa Daníelsdóttir
  • Edda Hrund Hinriksdóttir
  • Erla Katrín Jónsdóttir
  • Hinrik Bragason
  • Hulda Gústafsdóttir
  • Kári Steinsson
  • Kjartan Guðbrandsson
  • Logi Þór Laxdal
  • Rakel Sigurhansdóttir
  • Ragnar Tómasson
  • Sara Sigurbjörnsdóttir
  • Sigurbjörn Bárðason
  • Sigurður Vignir Matthíasson
  • Teitur Árnason
  • Viðar Ingólfsson
  • Þórdís Jensdóttir

Til hamingju knapar og aðstandendur með glæsilegan keppnisárangur á árinu,” segir í frétt frá stjórn Fáks.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link