Tvær taktfastar – video

  • 10. júní 2011
  • Fréttir
Tvær taktfastar - video

Fjöldinn allur af 5 vetra hryssum hafa náð einkunnarlágmörkum. Flokkurinn telur nú 53 hryssur, þar af 13 hryssur sem hlotið hafa einkunnina 5 fyrir skeið. Meðfylgjandi eru tvö myndskeið af hryssum sem við getum búist við að sjá á Landsmóti í sumar.

Hviða frá Skipaskaga er með næsthæstu einkunn 5 vetra hryssa, á eftir Kolku frá Hákoti. Hviða er undan Blæ frá Torfunesi og Von frá Litlu-Sandvík og hlaut hún í aðaleinkunn 8,30, þar af 8,33 fyrir sköpulag og 8,27 fyrir hæfileika. Sýnandi Hviðu var Hinrik Bragason.

Vænting frá Kaldbak er sömuleiðis komin inn á Landsmót, en hún hlaut í aðaleinkunn 8,06. Fyrir sköpulag fékk hún 8,06 og 8,00 fyrir hæfileika, þar af einkunnina 9 fyrir tölt, stökk og fegurð í reið. Vænting er undan Takti frá Tjarnarlandi og Bendingu frá Kaldbak sem er sammæðra Mídasi frá Kaldbak. Sýnandi Væntingar var Eva Dyröy.

 
IS2006201045 Hviða frá Skipaskaga
Örmerki: 352206000060162
Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt
Ræktandi: Jón Árnason
Eigandi: Guðmundur Ágúst Pétursson, Hulda Sigurðardóttir
F.: IS1999166214 Blær frá Torfunesi
Ff.: IS1993187449 Markús frá Langholtsparti
Fm.: IS1991266201 Bylgja frá Torfunesi
M.: IS1992287591 Von frá Litlu-Sandvík
Mf.: IS1987187590 Kyndill frá Litlu-Sandvík
Mm.: IS1981286197 Hending frá Stóra-Hofi
FORSKOÐUNARDÓMUR
Héraðssýning Sörlastöðum
Mál (cm): 145 – 142 – 66 – 145 – 28,5 – 19,0
Hófa mál: V.fr.: 9,2 – V.a.: 8,0
Sköpulag: 9,0 – 8,5 – 7,5 – 8,5 – 8,5 – 7,0 – 8,5 – 8,0 = 8,33
Hæfileikar: 8,5 – 7,5 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 8,5 – 7,5 = 8,27
Aðaleinkunn: 8,30      Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 7,5
Sýnandi: Hinrik Bragason
 
IS2006286295 Vænting frá Kaldbak
Örmerki: 352206000059768
Litur: 3400 Jarpur/rauð- einlitt
Ræktandi: Viðar Hafsteinn Steinarsson
Eigandi: Pabbastrákur ehf
F.: IS2000175485 Taktur frá Tjarnarlandi
Ff.: IS1986186055 Orri frá Þúfu
Fm.: IS1988275485 Kórína frá Tjarnarlandi
M.: IS2000286296 Bending frá Kaldbak
Mf.: IS1995188322 Jöfur frá Syðra-Langholti
Mm.: IS1997286295 Vænting frá Kaldbak
FORSKOÐUNARDÓMUR
Héraðssýning Sörlastöðum
Mál (cm): 140 – 135 – 63 – 142 – 26,5 – 17,0
Hófa mál: V.fr.: 9,0 – V.a.: 8,5
Sköpulag: 8,5 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 7,5 – 7,0 – 8,5 – 7,0 = 8,14
Hæfileikar: 9,0 – 8,0 – 5,0 – 9,0 – 8,5 – 9,0 – 7,0 = 8,00
Aðaleinkunn: 8,06      Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 8,0
Sýnandi: Eva Dyröy

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link