Tvær tíur
Ljósvaki frá Valstrýtu hefur vakið mikla athygli hér á Landsmóti hestamanna. Hann var rétt í þessu að ljúka sýningu sinni á yfirliti í flokki 6 vetra stóðhesta. Hann hækkaði töluvert en hann nældi sér m.a. í 10 fyrir stökk og tölt.
24 ár eru síðan einkunnin 10 fyrir stökk hefur verið gefin en það var Hylling frá Nýjabæ sem fékk 10 fyrir stökk á Vindheimamelum árið 1982. Einungis hafa þrjú hross hlotið þess einkunn, Ljósvaki, Hylling og Nös frá Urriðavatni en Nös fékk 10 fyrir stökk árið 1977.
Það var Árni Björn Pálsson sem sýndi Ljósvaka en hann hlaut fyrir hæfileika 8,75 sem er sjötta hæsta hæfileika einkunn sem klárhestur hefur hlotið. Hér fyrir neðan er hægt að sjá dóm Ljósvaka.
Aðaleinkunn: 8,54
Kostir: 8,75
Tölt: 10,0
1) Rúmt 2) Taktgott 3) Há fótlyfta 4) Mikið framgrip 5) Skrefmikið 6) Mjúkt
Brokk: 8,5
4) Skrefmikið 5) Há fótlyfta
Skeið: 5,0
Stökk: 10,0
1) Ferðmikið 2) Teygjugott 3) Svifmikið 4) Hátt 5) Takthreint
Vilji og geðslag: 9,5
2) Ásækni 4) Þjálni 5) Vakandi
Fegurð í reið: 9,5
1) Mikið fas 2) Mikil reising 4) Mikill fótaburður
Fet: 9,0
1) Taktgott 3) Skrefmikið
Hægt tölt: 9,0
Hægt stökk: 9,0
Sköpulag: 8,22
Höfuð: 9,0
1) Frítt 7) Vel borin eyru
Háls/herðar/bógar: 8,5
2) Langur 8) Klipin kverk
Bak og lend: 8,5
3) Vöðvafyllt bak 6) Jöfn lend 8) Góð baklína
Samræmi: 9,0
2) Léttbyggt 4) Fótahátt 5) Sívalvaxið
Fótagerð: 7,5
6) Þurrir fætur G) Lítil sinaskil
Réttleiki: 7,5
Afturfætur: C) Nágengir
Hófar: 7,5
Prúðleiki: 7,5
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH