Tveir efnilegir – video
Eiðfaxi tók nokkur myndskeið á yfilitssýningu Héraðssýningar á Sörlastöðum í lok maí.
Í flokki 6 vetra stóðhesta hlaut Konsert frá Korpu hæstu aðaleinkunn, 8,52, þar af einkunnina 8,64 fyrir hæfileika og 8,33 fyrir sköpulag. Einkunnina 9 fékk Konsert fyrir bak og lend, vilja og geðslag, fegurð í reið og skeið. Konsert er Sæssonur undan Gáskadótturinni Hátíð frá Hellu og sat Daníel Jónsson þennan unga gæðing á Héraðssýningunni.
Annar í flokki 6 vetra stóðhesta var Hringur frá Skarði sem hin unga og knáa Hekla Katharina Kristinsdóttir sat, en Hringur er einmitt úr ræktun foreldra hennar í Árbæjarhjáleigu. Hringur, sem er undan Þóroddi frá Þóroddsstöðum og Keilisdótturinni Móu frá Skarði, hlaut í aðaleinkunn 8,48, þar af 8,53 fyrir hæfileika og 8,41 fyrir sköpulag. Einkunnina 9 fékk Hringur fyrir bak og lend, hófa, vilja og geðslag og skeið. Á heimasíðu Árbæjarhjáleigu kemur fram að þessi geðgóði hæfileikahestur sé falur.
Meðfylgjandi eru myndskeið af þeim Konsert og Hring.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH