Tvígangur – Þrígangur – Fjórgangur – Fimmgangur

  • 28. júní 2011
  • Fréttir
Leitin að besta gæðingnum!

Forkeppni í A og B flokki gæðinga á LM2011 er lokið, það er að segja fyrri hluta hennar. Gæðingavalið er mikið og gott. Þrjátíu keppendur fara í milliriðil. Tíu efstu í A úrslit og næstu tíu í B úrslit.

Í A flokki stendur nú efstur stóðhesturinn Ómur frá Kvistum með 8,93, knapi Hinrik Bragason, og í öðru sæti er geldingurinn Stakkur frá Halldórsstöðum með 8,69, knapi Sigurbjörn Bárðarson. Þriðji er svo annar stóðhestur, Ágústínus frá Melaleiti með 8,67, knapi Daníel Jónsson. Skammt undan er svo geldingurinn Heljar frá Hemlu með 8,63, knapi Vignir Siggeirsson.

Í B flokki er Kjarnorka frá Kálfholti efst eftir fyrri hluta forkeppninnar með 8,84, knapi Sigurður Sigurðarson, í öðru sæti stóðhesturinn Eldjárn frá Tjaldhólum með 8,74, knapi Guðmundur Björgvinsson, þriðja Alfa frá Blesastöðum með 8,72, knapi Sigursteinn Sumarliðason, og fjórði stóðhesturinn Mídas frá Kaldbak með 8,66, knapi Steingrímur Sigurðsson.

Ómur frá Kvistum og Kjarnorka frá Kálfholti hafa allnokkuð forskot í einkunn eftir fyrsta hlutann, sem lofar góðu fyrir úrslitin, þar sem hann er riðinn á sama hátt og úrslitin, það er að segja aðeins eru riðnar tvær og þrjár gangtegundir. Í A flokki: tölt, brokk og skeið, og í B flokki: tölt og brokk. Forkeppni og úrslit gæðingakeppninnar er því í rauninni tvígangs- og þrígangskeppni. Á sama hátt og töltkeppni er eingangskeppni. Munurinn er sá að í tölti er keppt í sömu atriðum alla keppnina.

Milliriðlar í gæðingakeppninni eru riðnir á annan hátt en fyrsti hlutinn og má segja að strangt til tekið séu þeir önnur keppnisgrein. Aðeins einn keppandi er inni á vellinum í einu, í stað þriggja í forkeppni og tíu í úrslitum. Í A flokki eru riðnar fimm gangtegundir og í B flokki fjórar. Líkt og í fjórgangi og fimmgangi í íþróttakeppni. Hestur sem er efstur eftir fyrsta hluta keppninnar getur því hafnað mun neðar ef gangtegundirnar fet og stökk eru lélegar. Hugsanlega keppir hann í B úrslitum og síðan í A úrslitum. Þar sem hann lendir kannski aftur á toppnum!

Í þessu eru augljósar mótsagnir, sem vekja upp spurningar um upphaflegt markmið gæðingakeppninar og hvar við erum stödd nú. Með breyttum formi og áherslum hafa vaknað spurningar um hvers sé í raun leitað. Það er nefnilega ekki svo augljóst. Er það upplagsbesti hesturinn? Er það best riðni og best þjálfaði hesturinn? Er það besti knapinn? Er það þrekmesti hesturinn? Er það besti tví- og þrígangarinn, eða besti fjór- og fimmgangarinn?

Sjá öll úrslit á www.landsmot.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link