Tvö hestaslys á Suðurlandi í vikunni
Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi kemur fram að tvö slys hafi orðið í vikunni tengd hrossum en þetta kemu fram á vef sunnlenska.is. Slys varð síðast liðinn fimmtudag þegar karlmaður um áttrætt slasaðist í hesthúsi í Árnessýslu þegar hestur hljóp á manninn á felldi hann. Maðurinn fékk áverka á höfuð og missti meðvitund en komst þó fljótlega til meðvitundar aftur. Hann var fluttur á sjúkrastofnun til aðhlynningar.
Þá slasaðist kona á fimmtugsaldri þegar hún féll af hestbaki og lenti á vegg en slysið varð inni í reiðskemmu í Landsveit. Hún var einnig flutt til aðhlynningar á heilbrigðisstofnun.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH