Tvö námskeið um járningu og hófhirðu

  • 29. nóvember 2011
  • Fréttir
Tvö námskeið um járningu og hófhirðu

Endurmenntun Landbúnaðarháskólans stendur fyrir tveimur námskeiðum um járningu á næstunni. Kennari námskeiðana er Sigurður Oddur Ragnarsson járningameistari og bóndi og fara þau fram að Mið-Fossum í desember og að Kjóavöllum í janúar:

 
Járning og hófhirða í Hestamiðstöð LbhÍ að Mið-Fossum
 
Námskeiðið er einkum ætlað bændum, hrossaræktendum og áhugamönnum.
 
Fjallað verður um undirstöðuatriði við hófhirðingu og járningu hesta. Kennd verður hófhirðing, tálgun og járningar. Rætt verður um áhrif járningar á hreyfigetu hestsins og fjallað um gerð hófsins og hlutverk. Námskeiðið er að mestu verkleg kennsla og koma þátttakendur því með eigin járningaáhöld og hest/hesta. Hámarksfjöldi þátttakenda 10.
 
Kennari: Sigurður Oddur Ragnarsson járningameistari og bóndi á Oddsstöðum.Tími: Lau. 10. des, kl. 10:00-18:00 og sun. 11. des, kl. 9:00-16:00  (19,5 kennslustundir) í Hestamiðstöð LbhÍ á Miðfossum.Verð: 22.900kr. (kennsla, gögn, aðstaða fyrir hest og veitingar).
 
Skráningar: [email protected] eða s: 433 5000.
 
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 5200 kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590. Minnum á Starfsmenntasjóð bænda – www.bondi.is
 
Járning og hófhirða í samstarfi við hestamannafélögin Gust og Andvara
 
Fjallað verður um undirstöðuatriði við hófhirðingu og járningu hesta. Kennd verður hófhirðing, tálgun og járningar. Rætt verður um áhrif járningar á hreyfigetu hestsins og fjallað um gerð hófsins og hlutverk. Námskeiðið er að mestu verkleg kennsla og koma þátttakendur því með eigin járningaáhöld og hest/hesta. Hámarksfjöldi þátttakenda 10.
 
Kennari: Sigurður Oddur Ragnarsson járningameistari og bóndi á Oddsstöðum.Tími: Bóklegt þri. 24. jan. kl 20:00-22:00, bóklegt fös. 27. jan. kl 17.00-19.00 og verklegt lau. 28. jan kl 09:00-17:00 (16,5 kennslustundir) á Kjóavöllum. Bóklegt er kennt í samkomusal reiðhallar Gusts í Glaðheimum.Verð: 18.500 fyrir skuldlausa félagsmenn Gusts/Andvara. Ef sæti verða laus fyrir aðra er verðið 22.900 kr. (kennsla, gögn, aðstaða fyrir hest og veitingar). 
 
Skráningar: [email protected] eða s: 433 5000.
 
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 5200 kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590. Senda kvittun á [email protected] Minnum á stéttarfélagssjóði.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link