Umferðarreglur hestamanna í þéttbýli

  • 6. apríl 2020
  • Fréttir

Nú fer senn að líða að páskum og reikna má með aukinni umferð á reiðvegum. Við viljum því benda fólki að virða umferðarreglur hestamanna í þéttbýli. Förum varlega og sýnum tillitsemi og munum hjálmanotkun.

1. Hestamenn víkja til hægri á reiðleiðum.
2. Hestar sem eru teymdir skulu ávallt vera hægramegin og ekki fleiri en tveir ( þrír til reiðar ).
3. Reiðhjálmar eru sjálfsögð öryggistæki.
4. Endurskinsmerki í skammdegi veita hestum og mönnum aukið öryggi.
5. Lausir hundar eru ekki leyfilegir á reiðleiðum og í hesthúsahverfum.
6. Áfengi og útreiðar fara ekki saman.
7. Sýnum tillitsemi, ríðum ekki hratt á móti eða aftanundir aðra reiðmenn.
8. Fari margir hestamenn saman í hóp skal ríða í einfaldri röð ef umferð er á móti.
9. Ríðum á reiðvegum og slóðum þar sem því verður viðkomið.
10. Teymum hesta, rekstrar eru bannaðir í þéttbýli.

Leiðbeiningar Vegargerðarinnar og Landssamband hestamannafélaga

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar