Umheimurinn verði uppfræddur-
Sigurður Sæmundsson var á nefndarfundi FEIF ekki alls fyrir löngu og hafði hann þetta að segja…
„Tillögur þýskra fulltrúa eru þess eðlis að skapast gætu vandamál fyrir okkur varðandi þátttöku okkar í HM. Þeir fara framá að sú aðstaða sem við höfum alltaf haft fyrir okkar hross á HM verði ekki lengur í boði og að hross héðan verði bólusett einhverjum mánuðum áður en þau eru send á leikana sem væntanlega myndi þýða að þau yrðu að vera í sóttkví frá bólusetningu að brottför. Að öðrum kosti stinga þessir Þýsku fulltrúar uppá því að Íslenska landsliðið tæki þátt á hrossum sem þegar eru komin út. Þetta myndi setja þátttöku Íslands í HM í uppnám.
Þessar þýsku tillögur eru settar fram vegna vanþekkingar og rangra upplýsinga um það hvað olli veikindum í hrossum hér á landi en einnig getur samkeppnispólitík haft eitthvað með málið að gera“.
Því er semsagt haldið fram að Ísland sé ekki lengur hreint eða sjúkdómalaust land.
Hvað er til ráða?
Það er áríðandi að umheiminum verði gert það ljóst hvað olli veikindunum, að engin hætta sé á ferðinni. Svíar hafa nú þegar áttað sig á því að bakterían sem olli skaðanum er til þar í öllum hrossum og veldur engum skaða.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson