Umsóknarfrestur til 20. júní
Minnt er á að umsóknarfrestur nýrra liða í Áhugamannadeild Spretts 2016 er til 20 júní, að er fram kemur í tilkynningu frá hestamannafélaginu Sprett.
„Þau lið sem unnið hafa sér keppnisrétt verða að staðfesta við forsvarsmenn deildarinnar áframhaldandi þátttöku fyrir 20 júni 2015 ásamt liðskipan.
Ný lið sem áhuga hafa á að koma í deildina þurfa að skila inn umsóknum fyrir 20 júni. Umsókninni þurfa að fylgja staðfest nöfn knapa liðsins.
Dregið verður úr umsóknum þann 1 júli í veislusal Spretts. Nánar auglýst síðar.
Þau lið sem falla úr deildinni 2015 geta sótt um aftur og fara í pottinn ásamt nýjum liðum sem sækja um. Það eru fjögur sæti laust í Áhugamannadeild Spretts 2016.
Umsóknir sendist á [email protected] fyrir 20 júni n.k.
Við bendum á reglur Áhugamannadeildar Spretts – liður 7 – um hvaða knapar hafa keppnisrétt í deildinni.
- 7. Keppendur í Áhugamannadeildinni – inngangsskilyrði
- 7.1. Knapar sem keppa í áhugamannaflokkum
- 7.2 Knapar sem hafa ekki laun af tamningu eða þjálfun hesta þ.e.a.s. hafi hestamennsku sem aðal atvinnugrein
- 7.3. Knapar sem ekki hafa keppt í meistaraflokki seinustu 3 ár eða keppt t.d. í Meistaradeildinni. Undantekin er keppni á Íslandsmóti þar sem einungis er keppt í einum flokki, meistaraflokki þ.e. knapar í áhugamannaflokkum (sem keppa venjulega í 1 og 2 flokki) sem keppa á Íslandsmóti hafa keppnisrétt í Áhugamannadeildinni.
- 7.4. Lágmarksaldur keppenda í Áhugamannadeild er 22 ár.
- 7.5. Stjórn Áhugamannadeildar Spretts hefur loka ákvörðunarvald um hvort knapar uppfylla inngangskilyrði
Dagsetningar móta 2016 hafa verið ákveðnar.
- Fimmtudagur 4 febrúar : 4gangur
- Fimmtudagur 18 febrúar : Trekk/smali – tímabraut
- Fimmtudagur 3 mars : 5gangur
- Fimmtudagur 17 mars : Slaktaumatölt
- Fimmtudagur 31 mars : Tölt – lokamótið
Hvetjum hestamenn að safna saman í lið og sækja um í Áhugamannadeild Spretts 2016.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH