Undir hvern fóru þær?
„Undir hvern fóru þær?“ hefur alltaf verið vinsælar greinar hér á vefnum. Ræktendur virðast hafa mikinn áhuga á því að sjá hvaða stóðhesta aðrir eru að velja á hryssurnar sínar. Eiðfaxi tekur ný fyrir nokkrar af þeim hryssum sem hlutu heiðursverðlaun á Haustráðstefnu Fagráðs nú í nóvember.
Elísa frá Feti hlaut Glettubikarinn í ár en Glettubikarinn hlýtur sú hryssa sem stendur efst til heiðursverðlauna það árið. Elísa er undan Gusti frá Hóli og Þernu frá Feti sem var Orradóttir. Hún á sex sýnd afkvæmi, hæst dæmda afkvæmi hennar er Elrir frá Rauðalæk en hann hlaut 8,66 í aðaleinkunn. Elrir er undan Arnþóri frá Auðsholtshjáleigu. Elísu var haldið undir Sólon frá Þúfum í sumar.
Álfarún frá Halakoti er undan Álfasteini frá Syðri-Gegnishólum og Oddrúnu frá Halakoti sem var undan Oddi frá Selfossi og Grágás frá Þjótanda. Álfarún á fimm sýnd afkvæmi, hæst dæmda afkvæmi hennar er Vonandi frá Halakoti en hann hlaut 8,49 í aðaleinkunn. Vonandi er undan Arion frá Eystra-Fróðholti. Álfarúnu var haldið undir Leyni frá Garðshorni á Þelamörk.
Píla frá Syðra-Garðshorni er undan Adam frá Ásmundarstöðum og Orradóturinni, Kleópötru frá Nýjabæ. Hún á fimm sýnd afkvæmi og er hæst dæmda afkvæmi hennar Svarfdæla frá Þúfum undan Stjörnustæl frá Dalvík en hún hlaut 8,23 í aðaleinkunn. Pílu var haldið undir Hannibal frá Þúfum.
Grýla frá Þúfum er undan Álfi frá Selfossi og Lygnu frá Stangarholti sem er undan Degi frá Kjarnholtum I og Muggu frá Kleifum. Grýla er móðir Hannibals frá Þúfu en Hannibal er jafnframt hæst dæmda afkvæmi hennar með 8,68 í aðaleinkunn. Grýlu var haldið undir Kjuða frá Dýrfinnustöðum.
Jóna frá Kjarri fór undir Sægrím frá Bergi. Jóna er undan Gusti frá Hóli og Jónínu frá Hala sem var undan Þokka frá Garði og Blökk frá Hofsstöðum en Jónína er móðir Stála frá Kjarri. Hæst dæmda afkvæmi Jónu er Kilja frá Kjarri en hún er undan Kiljani frá Steinnesi og hlaut hún 8,32 í aðaleinkunn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH