Undirbúningur er hafinn fyrir Meistaradeild KS 2021!

  • 10. október 2020
  • Fréttir

Sigurlið Þúfna 2020

Eitt sæti er laust deildinni. Þau lið sem eiga þátttökurétt í deildinni þurfa að staðfesta fyrir 31.október hvort þau muni halda áfram.

Þau lið sem eiga þátttökurétt eru:

Þúfur

Hrímnir

Syðra-Skörðugil/ Weierholz

Regulator Complete / Skáney

Equinics

Íbishóll

Leiknisliðið

Ný lið sem áhuga hafa á að koma í deildina þurfa að skila inn umsóknum fyrir 15.nóvember á netfangið [email protected] 

Umsókninni þurfa að fylgja nöfn liðsmanna og tilnefna einn liðsstjóra. 

Það lið sem féll úr deildinni 2020 getur sótt um aftur og fer í pottinn ásamt nýjum liðum sem sækja um.

Liðin verða áfram skipuð 5 liðsmönnum. Í hverri keppnisgrein keppa þrír liðsmenn. Heimilt er að skipa þjálfara en greitt er þá sérstaklega fyrir hann. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link