Undirbúningur fyrir HM 2013 hafinn

  • 17. janúar 2013
  • Fréttir
Undirbúningur fyrir HM 2013 hafinn

Í gær stóðu Landsliðsnefnd og Hafliði Halldórsson liðstjóri fyrir kynningarfundi í húsi ÍSÍ. Fundurinn var ætlaður knöpum sem hafa hug á því að fara í úrtöku  fyrir HM 2013 í Berlín.  Hafliði fór meðal annars yfir dagskrá LH, kynnti fyrirlestra og námskeiðahöld fyrir verðandi kandídata landsliðsins. 

Mikill metnaður verður lagður í það að knapar séu vel undirbúnir fyrir HM bæði andlega og líkamlega.  Þeim verður leiðbeint af þekktum og reyndum þjálfurum í vetur. Þjálfun knapa verður skipt í fullorðinshóp og ungmennahóp en fræðslufundir verða sameiginlegir í báðum hópum.  

 

Dagskráin er svohljóðandi:

Janúar: Þann 19. janúar verður haldið fyrirhugað þjálfunarnámskeið með Julio Borba með aðstoð Rúnu Einarsdóttur og Olil Amble.  Þær stöllur halda svo þjálfunarnámskeið fyrir ungmennin þann 26. og 27. janúar.  

Febrúar: dýralæknir mun meðal annars fara yfir, sóttvarnir, hófa og munnáverka.  Einnig verður hugað að heilsurækt og mataræði knapa. „Mikið álag er framundan og sá maður sem ætlar að ná árangri þarf að líða vel og vera í góðu formi,“ segir Hafliði.  

Mars: þá mun liðsstjórinn svo fara yfir verkefni og stöðu mála.  Íþróttadómarar fara yfir áherslur,dóma og dómskala.   „Við fáum okkar bestu íþróttadómara til þess að fara yfir allan skalann, hvernig við getum tæklað okkar reiðmennsku, þú þarft gjörsamlega að fara inn á völlinn og ekki hafa efasemdir um hvað að er sem dómarinn vill.“  segir Hafliði.

Apríl: Liðstjóri fer yfir stöðu mála framhald, fyrirhuguð verður sýnikennsla og fyrirlestur í reiðhöll Eldhesta, þar sem Jóhann Skúlason og Agnar Snorri Stefánsson deila reynslu sinni með verðandi HM knöpum.  

Júní: Keppnisfyrirlestrar og keppnistækni.  Fyrirlesararnir eru ekki af verri endanum,  það eru þeir eru Alfreð Gíslason, Sigurbjörn Bárðarson, Guðmundur Guðmundsson og Sigurður Sæmundsson.

Úrtakan fyrir HM verður svo haldin 12.-17. júní í samvinnu við hestamannafélagið Fák og Gullmótið. 

„Til að leitast eftir einhverri hjálp gagnvart okkur sjálfum og hestinum, þýðir ekki að vera með nokkura feimni, ekki leyna veikleikunum. Ef við vitum um einhverja hluti sem við getum betrumbætt er eins gott að greina þá strax og vinna í þeim,“ segir Hafliði og hvetur alla áhugasama til að skrá sig í undirbúningshópinn eða leita upplýsinga, að senda fyrirspurn á netfangið [email protected]   

 

 

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link