Ungfolasýning hjá Adam
Já, nú er það alvöru folasýning, sýning sem merarþjóðin hefur beðið eftir. Ungfolasýning þar sem eistu og öflug lend eru það sem skiptir máli. Laugardaginn 1 mars, kl. 14, fer fram ungfolasýning Adams í Boganum að Þúfu í Kjós. Allir folar eldri en veturgamlir velkomnir. Þeir sem hafa hug á að koma með þátttakendur, þurfa að senda inn skráningu á netfangið: [email protected] í síðasta lagi 28 febrúar. Nafn, uppruni og aldur fola eða IS-númer þarf að koma fram, ásamt nafni ræktanda og eiganda. Þátttökugjald er kr. 2500 fyrir hvern fola.
Efstu folar verðlaunaðir.
Dómari/umsagnaraðili verður enginn annar en hæsti kynbótadómari landsins; Þorvaldur Kristjánsson. Hver foli verður metinn út frá byggingu og hreyfingum. Þetta er tilvalið tækifæri til að horfast í augu við raunveruleikan; er folinn virkilega einhver „graðfoli“ ? eða er gelding málið???
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH