Ungfolasýning í Ölfushöllinni
Árleg ungfolasýning Hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður laugardaginn 9. apríl í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli.
„Fyrirkomulag ungfolasýningarinnar með svipuðu sniði og í fyrra. Starfandi kynbótadómarar munu taka út folana bæði fyrir sköpulag og hreyfingu. Rétt til þátttöku eiga folar fæddir árið 2008 og 2009. Sköpulagsmat hefst kl. 9:30 en sýningin kl. 11:30. Dómarar raða efstu fimm folunum í hvorum flokki. Áhorfendur velja síðan álitlegasta folann í hverjum flokki.
Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 7. apríl kl. 12:00 . Skráningargjald er 3.000 kr fyrir félagsmenn en 3.500 kr fyrir aðra. Innifalið í skráningu eru tveir miðar á ungfolasýninguna. Miðaverð á ungfolasýninguna er 1.000 kr. Skráning í síma 899-8180 eða á netfangið [email protected]. Félagsmenn og aðrir áhugamenn um hrossarækt eru hvattir til að mæta,“ segir í fréttatilkynningu frá Hrossaræktarsamtökum Suðurlands
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH