Ungir leiðtogar FEIF
Þá gæti viðburðurinn ungir leiðtogar á vegum FEIF verið eitthvað fyrir þig. Tveimur þátttakendum frá hverju FEIF-landi er boðið að taka þátt í netviðburði 21. nóvember, svo í Vín dagana 1.-3. apríl.
Umfjöllunarefni þessa árs er „Stafræn tengslanet og hvers vegna það er mikilvægt fyrir okkur í hestaheiminum“, efni sem hefur mikla þýðingu vegna áskorana og tækifæra sem stafar af aukinni stafrænni þekkingu og áframhaldandi heimsfaraldri. Í síbreytilegum heimi er erfitt að tengjast fólki og taka þátt í starfsemi og þess vegna er undirtitill viðburðarins „Vertu tengdur með núverandi sköpunartækjum“. Aldrei áður hefur ábyrg og skilvirk notkun samfélagsmiðla verið jafn mikilvæg! Þessi viðburður er tækifæri til að kynnast þessu áhugaverða efni.
Þátttakendur geta hlakkað til skemmtilegra verkefna og áhugaverðra fyrirlestra en gestafyrirlesarar eru Sigrid Brandstätter og Daniel Brandel. Ef þú vilt sækja um, sendu tölvupóst til Helgu Bjargar Helgadóttur en hún er ábyrgur fyrir umsóknarferlinu, netfangið hennar er [email protected]. Viðburðurinn á netinu kostaði 35 €, viðburðurinn í Vín 220 € og 205 € ef þú tekur þátt í báðum viðburðunum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH