Unn Krogen vinsæl á Íslandi
Um helgina var haldið námskeið með Unn Kroghen á Borg í Þykkvabæ. Námskeiðið tókst mjög vel og nemendur himinlifandi með árangur helgarinnar. Unn nálgast knapann og hestinn á skemmtilegan hátt, er gríðarlega fljót að lesa bæði hest og reiðmann. Hún hefur mikla reynslu og hefur sjálf reynt nánast allt í sinni reiðmennsku. Aðferðir hennar eru á margan hátt mjög ólíkar því sem tíðkast í dag, en hún er dugleg að útskýra það sem stendur á bakvið þær og í lok námskeiðsins efast enginn um gildi þeirra. Einfaldleikinn er í fyrirrúmi, hún leggur mikið uppúr því að hesturinn sé mjúkur og léttur í munni og skilji og hlusti á knapann.
Námskeiðið í mars var fyrir löngu fullbókað og einungis eru örfá pláss laus á námskeið sem hún heldur 8-10 apríl næstkomandi. Annað námskeið verður síðan haldið helgina 13-15 maí. Skráning á netfangið [email protected] eða í síma 863-8813
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH