Uppskerufögnuður Skagfirðinga
Björn og Harpa, ræktendur í Ytra-Vallholti, taka við Ófeisgbikarnum
Á Uppskerufagnaði skagfirskra hestamanna í gærkvöld (30.nóv.) var Ytra-Vallholt útnefnt hrossaræktarbú Skagafjarðar 2013, en valið grundvallaðist á árangri hrossanna Knás, Kommu og Gátu. Þau Ytra-Vallholtshjón, Björn og Harpa, fóru því heim með Ófeigsbikarinn, sem er farandgripur og er veittur árlega.
Sörlabikarinn hlýtur hæst dæmda kynbótahross ársins (skagfirskur uppruni og eigandi) og að þessu sinni var það stóðhesturinn Blær frá Miðsitju (8,54) sem hlaut þennan bikar og var það ræktandinn, Magnús Andrésson, sem veitti bikarnum viðtöku.
Kynbótaknapi ársins að þessu sinni var Bjarni Jónasson og hampaði hann Kraftsbikarnum.
Magnús Andrésson að taka við Sörlabikarnum
Blær frá Miðsitju hæst dæmda kynbótahrossið
Knár frá Ytra-Vallholti
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH