Uppskeruhátíð og sviðaveisla
Magnús og Guðný taka við afreksverðlaunum fyrir Kolskegg
Hrossaræktafélag Biskupstungna hélt sýna árlegu Uppskeruhátíð og Sviðaveislu í Friðheimum á fimmtudagskvöldið s.l.
Góð mæting og stemming var á staðnum. Sigurður Sæmundsson hrossaræktandi á Skeiðvöllum og fyrrum landsliðseinvaldur var gestur hátíðinnar og fór yfir nýafstaðið heimsmeistaramót í Berlín.
Á Uppskeruhátiðinni voru veitt verðlaun, fyrir hæst dæmdu stóðhesta og hryssur, ræktunarbúsverðlaun og afreksverðlaun:
Hæst dæmdu hryssur:
1. Ör frá Torfastöðum a.e. 8,08, ræktandi: Ólafur og Drífa Torfastöðum
2. Glóð frá Dalsholti a.e. 8,08, ræktandi Sigurður Jensson Dalsholti
3. Sibíl frá Torfastöðum a.e. 8,06, ræktandi: Ólafur og Drífa Torfastöðum
Hæst dæmdu stóðhestar
1. Kolskeggur frá Kjarnholtum1 a.e. 8,48 , ræktandi Magnús Einarsson Kjarnholtum 1
2. Seimur frá Bræðratungu a.e. 8,35, ræktandi Kjartan Sveinsson Bræðratungu
3. Þáttur frá Fellskoti a.e. 8,07, ræktandi Fellskotshestar ehf
Hrossaræktunarbú ársins ársins var valið Torfastaðir
Afreksverðlaun
Magnús Einarsson Kjarnholtum 1 fyrir stóðhestinn Kolskegg frá Kjarnholtum 1 hæst dæmda 5 vetra stóðahest landssins 2013
Kristinn og María Fellskoti fyrir Hnokka frá Fellskoti heimsmeistara í tölti 2013.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH