Uppskeruhátíð Snæfellings
Uppskeruhátíð Snæfellings fór fram föstudaginn 11. Nóvember sl. að Innri-Kóngsbakka. Veitt voru verðlaun og viðurkenningar, dregið í happdrætti og mikið sungið eftir því sem fram kemur á heimasíðu félagsins.
Þotuskjöldinn og viðurkenningu fyrir ræktunarbú ársins fengu hjónin á Bergi í Eyrarsveit, Anna Dóra Markúsdóttir og Jón Bjarni Þorvarðarson fyrir frábært ræktunarstarf, en s.l. 2 ár hafa þau verið tilnefnd til heiðursverðlauna Bændasamtaka Íslands. Þau hjón voru einnig sigursæl er kom að ræktunarverðlaunum, hlutu fimm slík á hátíðinni:
Ræktunarverðlaun fyrir hryssur:
- 4 v: Stássa frá Naustum bygg 8,05 hæf 8,00 aðal 8,02 Illugi Pálsson, Naustum
- 5 v: Skriða frá Bergi bygg 8,13 hæf 8,43 aðal 8,31 Jón Bjarni, Bergi
- 6 v: Brá frá Bergi bygg 8,02 hæf 8,40 aðal 8,25 Anna Dóra, Bergi
- 7 v og eldri: Pollý frá Leirulæk bygg 8,03 hæf 8,08 aðal 8,06 Hrísdalshestar sf
Ræktunarverðlaun fyrir stóðhesta:
- 4 v: Haki frá Bergi bygg 8,18 hæf 8,01 aðal 8,07 Jón Bjarni, Bergi
- 5 v: Valur frá Keldudal bygg 7,89 hæf 8,30 aðal 8,13 Hrísdalshestar sf
- 6 v: Sporður frá Bergi bygg 8,11 hæf 8,27 aðal 8,21 Jón Bjarni, Bergi
- 7 v og eldri: Uggi frá Bergi bygg 8,24 hæf 8,79 aðal 8,57 Jón Bjarni, Bergi
Hvatningarverðlaun Snæfellings hlutu Harpa Lilja Ólafsdóttir, Guðrún Ösp Ólafsdóttir, Arnar Ásbjörnsson og Margrét Þóra Sigurðardóttir
Knapi ársins hjá Snæfellingi í ár er hins vegar Siguroddur Pétursson og dóttir hans Guðný Margrét Siguroddsdóttir fékk viðurkenningu fyrir bestan árangur í yngri flokkum.
Fleiri myndir má nálgast á heimasíðu Snæfellings.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH