Uppskeruhátíðin
Uppskeruhátíðin fór fram með pompi og prakt á Braodway, laugardaginn 10. nóvember. Meðan áhorfendur nutu veiga og matar, fór Gísli Einarsson sjónvarpsmaður hamförum í veislustjórn, Ingó veðurguð kom einnig og söng sinn ástarseið við hjartslátt ungra hestameyja. Glæsilegar verðlaunaafhendingar voru þó hátindur kvöldsins, enda hafa margir afreksknapar látið ljós sitt skína í ár.
Einnig voru veitt heiðursverðlaun LH fyrir mikið og óeigingjarnt starf í þágu íslenska hestsins, þeir Eyjólfur Ísólfsson reiðkennari og Ewald Isenbügel hlutu þau.
Flokkarnir sem verðlaunað var fyrir voru:
-Íþróttaknapi ársins
-Gæðingaknapi
-Skeiðknapi
-Efnilegasti knapinn
-Kynbótaknapinn
-Knapi ársins
-Ræktun keppnishrossa
Íþróttaknapi ársins var að þessu sinni Jakob Svavar Sigurðsson
Jakob er keppnisknapi í fremstu röð. Hann lætur til sín taka í öllum greinum hestaíþróttarinnar. Hann varð tvöfaldur Íslandsmeistari nú í sumar á hestinum Al frá Lundun II, í fimmgangi og í slaktaumatölti en þar sigraði hann með yfirburðum. Auk þess var hann í a – úrslitum í tölti á sama móti á hryssunni Árborgu frá Miðey. Á LM nú í sumar var hann í þriðja sæti í tölti á þeirri sömu hryssu.
Einnig voru tilnefndir:
Agnar Snorri Stefánsson;
Agnar Snorri stóð sig frábærlega á Norðurlandamótinu nú í sumar. Þar varð hann þrefaldur Norðurlandameistari, í fimmgang, slaktaumatölti og samanlagður fimmgangssigurvegari á hestinum Feng frá Staagerup.
Árni Björn Pálsson;
Minnir reglulega á það að hann er á meðal þeirra bestu. Hans stærsti sigur á árinu var án efa Íslandsmeistaratiltill í tölti á hestinum Stormi frá Herríðarhóli. Auk þess var hann var í þriðja sæti í slaktaumatölti á sama móti á hestinum Hrannari frá Skyggni.
Guðmundur Björgvinsson;
Fagmaður þar á ferð. Mætir í keppni með vel undirbúna hesta og fer hann afar vel á hesti. Guðmundur er Íslandsmeistari í fjórgangi á hestinum Hrímni frá Ósi. Hann var einnig í verðlaunasætum á sama móti í fimmgangi, 150 og 250 m. skeiði.
Sigurbjörn Bárðarson;
Sigurbjörn er einn af okkar farsælustu keppnismönnum hestamennskunnar. Hann hefur verið afar sigursæll í skeiði og tölti á þessu ári. Hann varð Íslandsmeistari nú í sumar í 150 m. skeiði á Óðni frá Búðardal og í 2. og 3. sæti í öllum hinum skeiðgreinum Íslandsmótsins á þeim Flosa og Andra. Á LM í ár sigraði hann 150 og 250 m skeið og varð annar í 100 m skeiði, allt á sitthvorum hestinum. Í tölti keppti hann á Jarli frá Miðfossum og voru þeir í a-úrslitum í þeirri grein, bæði á Lands – og Íslandsmóti nú í ár.
Gæðingaknapi ársins var að þessu sinni Sigurður Sigurðarson
Sigurður er keppnismaður af lífi og sál. Mætir til leiks og ætlar sér alla leið. Stærsti sigur Sigurðar nú í sumar var án efa þegar hann sigraði A-flokk gæðinga á Landsmóti hestamanna á hestinum Fróða frá Staðartungu með glæsibrag. Einnig varð hann þriðji í B-flokki gæðinga á sama móti á Loka frá Selfossi.
Einnig voru tilnefndir:
Einar Öder Magnússon;
Einar Öder kom sannarlega með comeback í sumar. Hann sigraði B-flokk gæðinga glæsilega og afar eftirminnilega í sumar á hesti sínum Glóðafeyki frá Halakoti í æsispennandi úrslitum í þeim flokki.
Guðmundur Björgvinsson;
Kemur einnig hér við sögu í þessum flokki. Guðmundur er sennilega sá knapi sem oftast hefur orðið í öðru sæti í B-flokki gæðinga á Landsmótum. Í ár varð hann annar í þeim flokki á hestinum Hrímni frá Ósi en hann kom inn á mótið með hæstu einkun klárhesta, 8,99. Guðmundur sýndi styrk sinn í þessari grein hestamennskunnar, gæðingakeppninni, þar sem hann kom fram með fjölda góðra hesta í gæðingakeppninni, bæði í A- og B- flokki.
Sigurbjörn Bárðarson;
Einnig tilnefndur í þessum flokki. Hefur átt einstakan feril á þeim rauðblesótta, Stakki frá Halldórsstöðum. Í ár sigrðuðu þeir A-flokk á Hvítasunnukappreiðum Fáks, urðu í 3.sæti í A-flokki gæðinga á Landsmótinu og sigruðu A-flokk á Meistaramóti Andvara í áttunda sinn.
Þórður Þorgeirsson;
Hefur svo sannarlega sýnt að hann getur gert meira en að sýna hross á beinni braut. Hann kom fram með Fláka frá Blesastöðum á LM í sumar þar sem hann sýndi hestinn listavel og uppskáru þeir 2.sætið í A-flokki gæðinga. Hann sýndi Fláka einnig á erlendri grundu seinna í sumar þar sem þeir hlutu hvorki meira né minna en yfir 9 í einkun.
Skeiðknapi ársins var að þessu sinni Sigubjörn Bárðarson
Fremstur meðal jafningja í skeiðgreinum. Skeiðhestarnir Óðinn, Flosi og Andri hafa oftar en ekki sigrað á skeiðmótum sumarsins.
Einnig voru tilnefnd:
Daníel Ingi Smárason;
Hefur komið gríðarsterkur inn í skeiðgreinar á síðustu árum. Með marga góða skeiðhesta, vel þjálfaða og uppbyggða. Hann var Íslandsmeistari í sumar í 250 m. skeiði á Blæng frá Árbæjarhjáleigu II og annar í 100 m. skeiði á Herði frá Reykjavík. Á LM var hann þriðji í 250 m skeiði á Blæng frá Árbæjarhjáleigu.
Davíð Jónsson;
Kom skemmtilega á óvart með sigri í 100 m. skeiði á LM í sumar. Þar sat hann hryssuna Irpu frá Borgarnesi og fór á tímanum 7,57 sek.
Eyjólfur Þorsteinsson;
Í úrslitum í mörgum skeiðkappreiðum ársins á hryssunum Spyrnu frá Vindási og Veru frá Þóroddsstöðum. Í 100 m. skeiði átti hann besta tímann hér á landi í ár 7,43 á Veru frá Vindási.
Guðlaug Marín Guðnadóttir;
Ungur og efnilegur skeiðknapi hér á ferð. Fékk silfurverðlaun á Norðurlandamóti íslenska hestsins nú í sumar í 250 m. skeiði. Keppti á hestinum Toppi frá Skarði og fóru þau á tímanum 22,86.
Efnilegasti knapi ársins var að þessu sinni Ásmundur Ernir Snorrason
Hefur átt góðu gengi að fagna á mótum ársins. Hann sigraði þrefalt á Íslandsmótinu í sumar í sínum flokki, ungmennaflokki. Sigraði tölt á Rey frá Melabergi og varð einnig fjórgangs- og fimmgangssigurvegari. Á því móti var hann í öðru sæti í fjórgangi og einnig varð hann annar á Landsmóti hestamanna í ungmennaflokki, einnig á Rey frá Melabergi.
Einnig voru tilnefnd:
Arnar Bjarki Sigurðarson;
Reynslumikill knapi þrátt fyrir ungan aldur. Mikill keppnismaður með breiðan hestakost. Í úrslitum á stærstu mótum sumarsins. Íslandsmeistari í fimmgangi ungmenna á Arnari frá Blesastöðum, annar í gæðingaskeiði og þriðji í 100 m. skeiði á sama móti á Snarpi frá Nýjabæ. Á LM í sumar var hann fjórði í sínum flokki á Kaspari frá Kommu.
Flosi Ólafsson;
Ungur knapi á uppleið. Gerði það gott á Norðurlandamóti íslenska hestsins í sumar. Flosi sigraði tölt ungmenna á Kveik frá Lian og varð annar í fjórgangi ungmenna, auk þess að næla sér í brons fyrir samanlagðan árangur í fjórgangsgreinum í ungmennaflokki.
Hanna Rún Ingibergsdóttir;
Er fyrirmyndarknapi, innan vallar sem utan. Hefur látið til sín taka í skeiðgreinum. Íslandsmeistari í gæðingaskeiði ungmenna á Birtu á Suður-Nýjabæ og önnur í 100 m. skeiði á sama móti á sömu hryssu. Hún er einnig Íslandsmeistari í fimi á hestinum Hlý frá Breiðabólstað.
Kári Steinsson;
Kári lét mikið af sér kveða á mótum sumarsins á hesti sínum Tóni frá Melkoti. Þeir félagar sigruðu eftirminnilega ungmennaflokk á Landsmóti hestamanna nú í sumar. Á Íslandsmóti nú í sumar urðu þeir í öðru sæti í tölti ungmenna og einnig í öðru sæti í sömu grein á feiknasterku Reykjavíkurmeistaramóti þeirra Fáksmanna.
Kynbótaknapi ársins var að þessu sinni Gísli Gíslason
Kynbótaknapi ársins er hestamaður af guðs náð. Hann sýnir fram á að hægt er að sýna mörg hross, til mikilla afkasta án áverka. Gísli er efstur á lista yfir fyrirmyndasýnendur. Hann sýndi 28 hross á árinu, öll áverkalaus. Átti eftirtektarverða sýningu á Trymbli frá Stóra – Ási, fór í 9,01 fyrir hæfileika, 10 fyrir skeið.
Einnig voru tilnefndir:
Bergur Jónsson;
Sýndi 42 hross á árinu, mörg hross úr eigin ræktun. Flugnir frá Ketilsstöðum hlaut 10 fyrir skeið og 9,5 fyrir vilja og geðslag í ár, undir hans stjórn.
Guðmundur Björgvinsson;
Sýndi 62 hross á árinu. Sýndi m.a. hryssuna sem sigraði 5v. flokk hryssna á LM í sumar, Furu frá Hellu, í einkunina 8,46. Sýndi einnig Sjóð frá Kirkjubæ sem varð í öðru sæti í flokki 5 v. stóðhesta á sama móti, einkun 8,60.
Jakob Svavar Sigurðsson;
Sýndi 92 hross á árinu. Helmingur þeirra, eða 41 hross fóru í fyrstu verðlaun. Sýndi 13 hross á Landsmóti og þar af þrír stóðhestar í verðlaunasætum.
Þorvaldur Árni Þorvaldsson;
Átti margar glæsisýningar á kynbótabrautinni í ár. Sýndi 29 hross á árinu. Sýndi Hrannar frá Flugumýri í hæstu hæfileikaeinkun ársins, 9,16. Þeir sigruðu jafnframt 6 v. flokk stóðhesta á LM í sumar.
Knapi ársins er að þessu sinni Guðmundur Björgvinsson
Hann er með breiðan árangur á árinu, tilnefndur í þremur flokkum. Virðist vera jafnvígur í öllum greinum hestamennskunnar. Prúður knapi, innan vallar sem utan.
Einnig voru tilnefndir:
Agnar Snorri Stefánsson;
Frábær árangur hjá honum á Norðurlandamóti íslenska hestins nú í sumar. Minnti þar á að hann er á meðal þeirra bestu.
Jakob Svavar Sigurðsson;
Tilnefndur í tveimur flokkum. Fagmaður á ferð og reiðmennskan til fyrirmyndar. Hefur algjöra sérstöðu þegar kemur að keppni í slökum taum.
Sigurbjörn Bárðarson;
Gullbjörninn. Keppnisskapið, eljan og dugnaðurinn er aðdáunarverður. Það hafa fáir tærnar þar sem hann hefur hælinn þegar kemur að keppni í skeiði.
Sigurður Sigurðarson;
Keppnismaður af guðsnáð. Leggur allt í sölurnar. Hefur náð þeim einstaka árangri að sigra allar hringvallagreinar Landsmóta.
Ræktun Keppnishrossa 2012
Blesastaðir 1a. hlutu verðlaunin í ár en það er það bú sem skilaði athyglisverðustum árangri á ræktun hrossa í keppni á vegum LH og FEIF. Þar var litið til árangurs nýliðins keppnistímabils hér heima og erlendis og frábæran árangur hrossa í keppni.
Einnig voru tilnefnd hrossaræktarbúin:
Álfhólar og Halakot
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH