Uppsveitadeild Íshesta 2013
Frábærar sýningar og rífandi stemning í troðfullri reiðhöll
“Rífandi stemning og eftirvænting ríkti þegar áhorfendur troðfylltu reiðhöllina á Flúðum föstudagskvöldið 22.febrúar þegar fyrsta mót í Uppsveitadeild Íshesta fór fram.
Keppt var í fjórgangi og liðin sjö tefldu fram sínu bestu hestum. Þar á meðal voru þekkt nöfn og aðrar vonarstjörnur.
Eftir forkeppni var Ólafur Ásgeirsson á glæsihestinum Hugleik frá Galtanesi efstur með 7,23 í aðaleinkunn, í öðru sæti Helga Una Björnsdóttir á Bikar frá Syðri-Reykjum með 7,17 og Guðmann Unnsteinsson á Prins frá Langholtskoti með 6,67 og Þórarinn Ragnarsson á Björk frá Enni með 6,57. Þessir knapar voru öruggir í A-úrslit en Sigurbjörg Bára Björnsdóttir á Blossa frá Vorsabæ II vann sig upp úr B-úrslitum í A-úrslit.
Í úrslitum snerist við röð efstu knapa og stóð Helga Una Björnsdóttir efst og sigraði á Bikar frá Syðri-Reykjum með 7,77 eftir stórglæsilega sýningu. Ólafur Ásgeirsson á Hugleik frá Galtanesi varð í öðru sæti með 7,57 og Guðmann Unnsteinsson í þriðja sæti með 6,90.
Eftir fyrsta mót er lið Baldvins og Þorvalds í efsta sæti með 19 stig og lið Kílhrauns í öðru sæti með 12 stig. Í þriðja sæti er lið Stuðmanna með 8 stig. Frumherjar eru með 7 stig, North Rock er með 5 stig Jáverk með 4 og Víkingarnir reka lestina.
Mótið gekk mjög og feiknagóð stemning var meðal áhorfenda sem nutu sýninga. Stór hópur skagfirskra hestamanna sem kallast Riddarar norðursins sem höfðu gert sér ferð suður yfir heiðar glöddu gesti með söng í hléi og uppskáru mikil fagnaðarlæti.
Næsta keppni verður fimmgangur föstudagskvöldið 15.mars,
IS2013LOG020 – Uppsveitadeild Íshesta 2013
Mótshaldari: Reiðhöllin á Flúðum
Dagsetning: 22.2.2013 – 22.2.2013
FJóRGANGUR V1
1. flokkur
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Litur Aðildafélag knapa Einkunn
1 Ólafur Ásgeirsson Hugleikur frá Galtanesi Rauður/milli- einlitt Smári 7,23
2 Helga Una Björnsdóttir Bikar frá Syðri-Reykjum Brúnn/milli- einlitt Smári 7,17
3 Guðmann Unnsteinsson Prins frá Langholtskoti Jarpur/ljós einlitt Smári 6,67
4 Þórarinn Ragnarsson Björk frá Enni Brúnn/milli- einlitt Smári 6,57
5 Líney Kristinsdóttir Rúbín frá Fellskoti Brúnn/milli- einlitt Logi 6,27
6 Sigurbjörg Bára Björnsdóttir Blossi frá Vorsabæ II Rauður/milli- blesótt vag… Smári 6,20
7 Sólon Morthens Kolbakur frá Hólshúsum Brúnn/milli- einlitt Logi 6,13
8 Hólmfríður Kristjánsdóttir Þokki frá Þjóðólfshaga 1 Brúnn/milli- einlitt Smári 5,90
9 Aðalsteinn Aðalsteinsson Hekla frá Ásbrekku Rauður/milli- stjörnótt Smári 5,83
10 María Birna Þórarinsdóttir Mávur frá Stóra-Vatnsskarðir Rauður Logi 5,63
11 Þorsteinn Gunnar Þorsteinss. Gyllir frá Hellu Móálóttur,mósóttur/milli-… Smári 5,47
12 Sölvi Arnarsson Elliði frá Efsta-Dal II Brúnn/milli- einlitt Trausti 5,40
13 Gunnlaugur Bjarnason Andrá frá Blesastöðum 2A Brúnn/milli- einlitt Smári 5,27
14 Bjarni Bjarnason Hnokki frá Þóroddsstöðum Brúnn/milli- einlitt Trausti 5,10
15 Knútur Ármann Bríet frá Friðheimum Brúnn/milli- einlitt Logi 5,00
16 Bjarni Birgisson Arkiles frá Blesastaðir 2A Rauður Smári 4,93
17-18 Kristján Ketilsson Diljá frá Fornusöndum Rauð/milli- tvístjörnótt Logi 4,83
17-18 Guðjón Örn Sigurðsson Gola frá Skollagróf Jarpur/milli- stjörnótt Smári 4,83
19 Hermann Þór Karlsson Sörli frá Arabæ Móálóttur,mósóttur/milli-… Smári 4,80
20 Jón Óskar Jóhannesson Sóley frá Áskoti Bleikur/fífil- blesótt Logi 4,57
21 Kristbjörg Guðmundsdóttir Blær frá Efsta-Dal I Rauður/milli- einlitt glófext Trausti 4,00
B úrslit
Sæti Knapi Hross Litur Aðildafélag knapa Einkunn
1 Sigurbjörg Bára Björnsdóttir Blossi frá Vorsabæ II Rauður/milli- blesótt vag… Smári 6,63
2 Sólon Morthens Kolbakur frá Hólshúsum Brúnn/milli- einlitt Logi 6,17
3 Hólmfríður Kristjánsdóttir Þokki frá Þjóðólfshaga 1 Brúnn/milli- einlitt Smári 6,10
4 Líney Kristinsdóttir Rúbín frá Fellskoti Brúnn/milli- einlitt Logi 6,07
5 Aðalsteinn Aðalsteinsson Hekla frá Ásbrekku Rauður/milli- stjörnótt Smári 5,87
A úrslit
Sæti Knapi Hross Litur Aðildafélag knapa Einkunn
1 Helga Una Björnsdóttir Bikar frá Syðri-Reykjum Brúnn/milli- einlitt Smári 7,77
2 Ólafur Ásgeirsson Hugleikur frá Galtanesi Rauður/milli- einlitt Smári 7,57
3 Guðmann Unnsteinsson Prins frá Langholtskoti Jarpur/ljós einlitt Smári 6,90
4 Þórarinn Ragnarsson Björk frá Enni Brúnn/milli- einlitt Smári 6,57
5 Sigurbjörg Bára Björnsdóttir Blossi frá Vorsabæ II Rauður/milli- blesótt vag… Smári 6,53
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH