Úrslit folaldasýningar á Minni-Borg
Hrossaræktarfélag Biskupstungna hélt folaldasýningu á Minni-Borg sunnudaginn s.l.
Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að alls hafi 20 folöld mætt til leiks jafnt skipt hryssur og hestar. Dómarar voru þau Bergur Jónsson og Olil Amble frá ræktunarbúi ársins Syðri Gegnishólum. Þau mátu hvern grip fyrir sig, gáfu faglega umsögn og röðuðu í þrjú efstu sæti í flokki merfolalda og flokki hestfolalda.
Úrslit eru eftirfarandi:
Hryssur
1. Dilja frá Kjarnholtum 1 rauðblesótt
F: Asi frá Lundum
M: Dagrenning frá Kjarnholtum 1
Ræktandi og eigandi Magnús Einarsson
2. Fantasía frá Fellskoti dökkjörp
F: Krákur frá Blesastöðum
M: Hugmynd frá Fellskoti
Ræktandi og eigandi Fellskotshestar ehf
3. Hlökk frá Hjarðarlandi móálótt
F: Lokkur frá Fellskoti
M: Harpa frá Hjarðarlandi
Ræktandi og eigandi Egill Jónasson
Hestar:
1. Fjalar frá Efri-Brú brúnn
F: Auður frá Lundum
M: Sunna frá Efri-Brú
Ræktandi og eigandi Sveinn Kristinsson
2. Einir frá Hjarðalandi rauðskjóttur
F: Lokkur frá Fellskoti
M: Roka frá Vindheimum
Ræktandi Egill Jónasson
Eigandi Þórdís Elín Egilsdóttir
3. Bláskeggur frá Kjarnholtum 1 móálóttur
F: Kvistur frá Skagaströnd
M: Hera frá Kjarnholtum 1
Ræktandi og eigandi Magnús Einarsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH