Úrslit frá Ístölti Austurlands

  • 14. apríl 2021
  • Fréttir

Ístölt Austurlands 2021 var haldið 10.apríl sl. á grasbrautinni á Stekkhólma, félagssvæði hestamannafélagsins Freyfaxa og fóru skráningar langt fram úr væntingum þar sem að mótinu var smellt á með einungis fimm daga fyrirvara. Keppendur komu frá sex hestamannafélögum, Freyfaxa, Hornfirðingi, Blæ og Snæfaxa, auk þess sem sitthvor keppandinn frá Létti og Herði voru skráðir til leiks. Mótið þótti takast afar vel og var haldið í blíðskaparveðri.

Í tölti undir 17 ára voru þær Elín Ósk Óskarsdóttir og Ísafold frá Kirkjubæ hlutskarpastar með einkunina 7,50.
Guðrún Alexandra Tryggvadóttir gerði góða ferð á Ístöltið. Hún stóð efst í opnum flokki í tölti annað árið í röð á hryssunni sinni Klukku frá Varmalæk og var einnig efst í B-flokki gæðinga á heimaræktaðri hryssu, Golu frá Ormarsstöðum.
Sigurvegari í A-flokki gæðinga var fimm vetra gamla hryssan Rómantík frá Sauðanesi ásamt knapa sínum, ræktanda og eiganda Ágústi M. Ágústssyni. Í tölti áhugamanna var það svo hin unga og efnilega Þrúður Kristrún Hallgrímsdóttir sem sigraði á hryssu sinni Þerney frá Brekku í Fljótsdal nokkuð örugglega. Helstu úrslit frá mótinu má sjá hér að neðan.
Myndir: Sonja Valeska


A-flokkur – A-úrslit

Sæti Hross Knapi Aðildafélag eiganda Einkunn
1 Rómantík frá Sauðanesi, Ágúst M Ágústsson, Snæfaxi 8,36
2 Hulinn frá Sauðafelli, Guðbjartur Hjálmarsson, Blær 8,34
3 Matthildur frá Stormi Einar Ben Þorsteinsson, Freyfaxi 8,24
4 Káinn frá Útnyrðingsstöðum Stefán Sveinsson, Freyfaxi 8,21
5 Óradís frá Strönd Bergur Már Hallgrímsson, Freyfaxi 8,09
6 Gjafar frá Hlíðarbergi Friðrik Reynisson, Freyfaxi 7,99
7 Embla frá Torfastöðum Sverrir Rafn Reynisson, Freyfaxi 7,90
8 Sóley frá Hryggstekk Ragnar Magnússon, Freyfaxi 7,82


B-flokkur – A-úrslit

Sæti Hross Knapi Aðildafélag eiganda Einkunn
1 Gola frá Ormarsstöðum Guðrún Alexandra Tryggvadóttir, Freyfaxi 8,41
2 Lilja frá Gunnarsstöðum Jóhannes Sigfússon, Snæfaxi 8,40
3 Skýstrókur frá Strönd Bergur Már Hallgrímsson, Freyfaxi 8,33
4-5 Máni frá Eystra-Fróðholti Guðrún Agnarsdóttir, Freyfaxi 8,26
4-5 Dagur frá Útnyrðingsstöðum Stefán Sveinsson, Freyfaxi 8,26
6 Jötunn frá Dýrfinnustöðum Guðdís Benný Eiríksdóttir, Freyfaxi 8,23
7 Reynir frá Skriðufelli Ragnar Magnússon, Freyfaxi 8,20
8 Framtíð frá Guðnastöðum Magnús Fannar Benediktsson, Freyfaxi 8,11


Tölt T3 –
2. flokkur
Sæti Knapi Hross Aðildafélag eiganda Einkunn

1 Þrúður Kristrún Hallgrímsdóttir Þerney frá Brekku, Freyfaxi 6,83
2 Guðrún Agnarsdóttir Máni frá Eystra-Fróðholti, Freyfaxi 6,33
3 Guðdís Benný Eiríksdóttir Jötunn frá Dýrfinnustöðum,Freyfaxi 6,17
4 Ármann Örn Magnússon Nora frá Egilsstaðabæ, Freyfaxi 5,67
5 Hallgrímur Þórhallsson Ósk frá Þingholti, Freyfaxi 5,50
6 Jónína Vigdís Hallgrímsdóttir Aríel frá Teigabóli, Freyfaxi 5,33


Opinn flokkur
Sæti Knapi Hross Aðildafélag eiganda Einkunn
1 Guðrún Alexandra Tryggvadóttir Klukka frá Varmalæk, Freyfaxi 7,00
2 Ragnar Magnússon Reynir frá Skriðufelli, Freyfaxi 6,67
3 Eiríkur Bjarnason Máni frá Eskifirði, Freyfaxi 6,50
4 Einar Ben Þorsteinsson Hafalda frá Gunnarsstöðum, Freyfaxi 6,33
5 Guðbjartur Hjálmarsson Hulinn frá Sauðafelli, Blær 6,17
6 Magnús Fannar Benediktsson Framtíð frá Guðnastöðum, Freyfaxi 5,83


Tölt T7 Unglingaflokkur

Sæti Knapi Hross Aðildafélag eiganda Einkunn
1 Elín Ósk Óskarsdóttir Ísafold frá Kirkjubæ, Hornfirðingur 7,50
2 Viðja Sóllilja Ágústsdóttir Dögg frá Sauðanesi, Hörður 7,00
3 Ída Mekkín Hlynsdóttir Brák frá Lækjarbrekku 2, Hornfirðingur 6,50
4-5 Friðrik Snær Friðriksson Kostur frá Margrétarhofi, Hornfirðingur 5,75
4-5 Ásgeir Máni Ragnarsson Leiknir frá Bakkagerði, Freyfaxi 5,75

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link