Úrslit frá þriðju vetrarleikum Sóta

  • 20. mars 2022
  • Fréttir

Þriðju vetrarleikar Sóta 2002 – Þrígangur fóru fram í Celcius höllinni í gær, laugardaginn 19 mars.

Stefnt hafði verið á að halda leikana út á vellinum en vegna veðurs og vallarskilyrða var ákveðið að færa mótið inn og tókst það vonum framar. Keppt var í tveimur flokkum, 17 ára og yngri og 18 ára og eldri.

Dómari var Ævar Örn og „Celcius“ bræðurnir , Magnús og Gunnar, og Exploring Iceland gáfu verðlaunin. Skemmtilegur dagur hjá Sóta!

 

Úrslit urðu þannig:


18 ára og eldri:
1. Margrét Lóa Björnsdóttir á Hug frá Eystri-Hól
2. Nanna Björk Bárðardóttir á Ljósvíkingi frá Hryggstekk (vantar á mynd)
3, Tómas Guðmundsson á Vaðli frá Efri-Brú
4. Tómas Guðmundsson á Gárungi frá Efri Brú

Stigahæsti knapinn í vetrarleikamótaröðinni: Margrét Lóa Björnsdóttir með fullt hús stiga (36 stig)

17 ára og yngri:
1. Vigdís Rán Jónsdóttir á Vála frá Minni-Núpi
2. Sóldís Marja Bergþórsdóttir á Grafík frá Hafnarfirði
3. Ella Mey Ólafsdóttir á Nótt frá Sveinskoti
4. Hugrún Gyða Þorsteinsdóttir á Heklu frá Ási 2
5. Helena Líf Peterson á Nótt frá Varmadal

Stigahæsti knapinn í vetrarleikamótaröðinni: Ella Mey Ólafsdóttir með 32 stig

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link