Úrslit í fjórgangi á Gullmótinu
Fjórgangsúrslitum er lokið á Gullmótinu í Hafnarfirði. Það voru þeir Eyólfur Þorsteinsson og Hlekkur frá Þingnesi sem sigruðu opna flokkinn með einkunnina 7,73. Í ungmennaflokki sigraði Julia Lindmark á Kalli frá Dalvík með einkunnina 6,80 og í unglingaflokki sigraði Arnór Dan Kristinsson á Háfeta frá Þingnesi með einkunnina 6,37.
Önnur í opnum flokki varð Olil Amble á Kraflari frá Ketilsstöðum með einkunnina 7,70 og þriðja varð Hulda Gústafsdóttir á Kjuða frá Kirkjuferjuhjáleigu með einkunnia 7,57.
Fjórgangur opinn
1 Eyjólfur Þorsteinsson / Hlekkur frá Þingnesi 7.73
2 Olil Amble / Kraflar frá Ketilsstöðum 7.7
3 Hulda Gústafsdóttir / Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu 7.57
4 Berglind Ragnarsdóttir / Frakkur frá Laugavöllum 7.27
5 Sigurbjörn Bárðarson / Penni frá Glæsibæ 7.2
6 Viðar Ingólfsson / Stemma frá Holtsmúla 1 7
Fjórgangur ungmenna
1 Julia Lindmark / Kall frá Dalvík 6.8
2 – 3 Ásta Björnsdóttir / Glaumur frá Vindási 6.47
2 – 3 Kári Steinsson / Melódía frá Litla-Moshvoli 6.47
4 Sigrún Torfadóttir Hall / Rjóður frá Dallandi 5.77
Fjórgangur unglinga
1 Arnór Dan Kristinsson / Háfeti frá Þingnesi 6.37
2 Bára Steinsdóttir / Spyrnir frá Grund II 6.3
3 Svanberg Óskarsson / Atlas frá Tjörn 5.9
4 Sigurjón Jónsson / Vísir frá Þóroddsstöðum 5.2
5 Rebekka Rut Petersen / Prins frá Blönduósi 4.47
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH