Úrslit Opna Orginal áhugamannamóts Fáks
Áhugamannamót Fáks og Orginal fór fram í gær. „Keppt var í tölti 1 flokk, 2 flokk og byrjendaflokk, 1 flokk og 2 flokk í fjórgangi og einum flokk í fimmgangi.
Rósa Valdimarsdóttir sigraði bæði í tölti og fjórgangi 1 flokks á Íkon frá Hákoti. Hörður Jónsson og Snerra frá Reykjavík sigruðu tölt 2 flokk og Drífa Daníelsdóttir og höfðinginn Háfeti frá Þingnesi sigruðu fjórgang 2 flokk, enduðu í 2 sæti í tölti 2 flokk og fengu sérstök verðlaun sem glæsilegasta par mótsins.
Sigurþór Sigurðsson sigraði fimmganginn og í flokki byrjenda í tölti sigraði Hrafnhildur Hrafnsdóttir á Snót frá Dalsmynni.
Þátttaka var mjög góð í þessu fyrsta áhugmannamóti Fáks og var stykt af Hestvit, Kerckhaert og Orginal Smáralind,“ segir í frétt frá Fáki.
Hér fyrir neðan má sjá öll úrslit mótsins.
Fimmgangur
1 Sigurþór Sigurðsson Faldur frá Strandarhöfði 5,21
2 Hilda Karen Garðarsdóttir Etna frá Ási 1 4,62
Fjórgangur 1. flokkur
1 Rósa Valdimarsdóttir Íkon frá Hákoti 6,57
2-3 Sævar Haraldsson Strengur frá Hrafnkelsstöðum 1 6,40
2-3 Rakel Sigurhansdóttir Stormur frá Efri-Rauðalæk 6,40
4 Kristinn Skúlason Þytur frá Oddgeirshólum 6,37
5 Brynja Viðarsdóttir Ketill frá Vakurstöðum 6,27
6 Ásta Márusdóttir Hrannar frá Skyggni 6,10
Fjórgangur 2. flokkur
1 Drífa Daníelsdóttir Háfeti frá Þingnesi 6,30
2 Hrefna Hallgrímsdóttir Jarl frá Þingholti 5,77
3 Gunnar Jónsson Blesi frá Hvítanesi 5,50
4 Björn Ragnar Morthens Snædís frá Suður-Bár 5,43
5 Elva Dís Adolfsdóttir Breki frá Austurkoti 5,23
6 Hrafnhildur Pálsdóttir Árvakur frá Bjóluhjáleigu 5,13
Tölt 1. flokkur
1 Rósa Valdimarsdóttir Íkon frá Hákoti 7,17
2 Kjartan Guðbrandsson Svalvör frá Glæsibæ 7,11
3 Sævar Haraldsson Glæðir frá Þjóðólfshaga 1 6,72
4 Kristinn Skúlason Þytur frá Oddgeirshólum 6,50
5 Drífa Harðardóttir Skyggnir frá Álfhólum 6,28
6 Rakel Sigurhansdóttir Ófeig frá Holtsmúla 1 6,11
Tölt 2. flokkur
1 Hörður Jónsson Snerra frá Reykjavík 6,61
2 Drifa Danielsdóttir Háfeti frá Þingnesi 6,56
3 Steinar Torfi Vilhjálmsson Toppur frá Litla-Moshvoli 5,94
4 Hanna B Sigurðardóttir Þoka frá Klettholti 5,83
5 Sigurður Helgi Ólafsson Hlökk frá Enni 5,67
6 Jóhanna Þorbjargardóttir Fóstri frá Bessastöðum 5,44
Tölt Byrjendaflokkur
1 Hrafnhildur Hrafnsdóttir Snót frá Dalsmynni 5,75
2 Guðrún Oddsdóttir Taktur frá Mosfellsbæ 5,67
3 Jón Bjarnason Perla frá Þorláksstöðum 5,42
4 Einar Hallsson Karmen frá Breiðstöðum 5,25
5 Guðborg Kolbeinsdóttir Kveikur frá Kjarnholtum 1 5,17
6 Elva Dís Adolfsdóttir Dreki frá Austurkoti 4,92
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum