Úrslit ungfolasýningar
Ungfolasýning Hrossaræktarfélaganna í Flóahreppi fór fram í reiðhöllinni í Syðri-Gegnishólum sl. fimmtudagskvöld. Alls tóku fjórtán tveggja og þriggja vetra folar þátt í sýningunni en ríflega 100 manns komu til að fylgjast með.
“Gunnar og Kristbjörg hrossaræktendur í Auðsholtshjáleigu dæmdu af kostgæfni. Margir glæsilegir folar sýndu flott tilþrif og þar á meðal var sýndur fallegur foli, Dofri frá Einhamri við Akranes undan Krák frá Blesastöðum og Freyju frá Litla-Kambi, en hann tók ekki þátt í sjálfri keppninni.
Stjórnir Hrossaræktarfélaganna vilja koma á framfæri þökkum til Bergs og Olil í S-Gegnishólum fyrir afnotin af reiðhöllinni þeirra. Einnig kærar þakkir til Gunnars og Kristbjargar fyrir dómstörfin en þau gáfu andvirði vinnu sinnar til æskulýðsstarfs félaganna,” segir í tilkynningu frá aðstandenum sýningarinnar.
Úrslit urðu þessi:
1. Gáli frá Dalbæ brúnn
F. Adam frá Ásmundarstöðum
M. Storka frá Dalbæ
Eig/rækt: Már Ólafsson og Sigríður Harðardóttir
2. Þröstur frá Efri-Gegnishólum rauðskjóttur
F. Natan frá Ketilsstöðum
M. Hrönn frá Efri-Gegnishólum
Eig/rækt: Bragi Birgisson
3. Gustur frá Langsstöðum grár
F. Kjarni frá Þjóðólfshaga
M. Von frá Langsstöðum
Rækt: Trausti Hjálmarsson
Eig: Trausti Hjálmarsson/Ketill Ágústsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH