Úrtaka fyrir Fákar og fjör 2011
Sunnudaginn 3. apríl nk. verður úrtaka fyrir stórsýninguna Fákar og fjör 2011. Úrtakan fer fram í Top Reiter höllinni á Akureyri og hefst kl. 13. Leitað er að kynbótahrossum (hryssum og stóðhestum), gæðingum (alhliða- og klárhrossum) og hvers konar hestatengdum atriðum sem hæfa sýningu sem þessari.
Úrtakan er öllum opin og er tekið við skráningum í úrtökuna í netfang: [email protected] (Anna Guðrún) og í síma 896-5309 (Frissi). Skráningafrestur er til kl. 18, laugardaginn 2. apríl n.k.
Það er hestamannafélagið Léttir sem stendur að sýningunni Fákar og fjör 2011 en hún mun fara fram í Top Reiter höllinni á Akureyri laugardaginn 16. apríl n.k.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH