Úrtaka í Svaðastaðahöllinni
Fréttatilkynning:
Það stefnir í hörku úrtöku miðvikudaginn 26. janúar. 11 knapar eru skráðir til leiks, og þar eru þekkt nöfn úr keppnisgeiranum meðal þátttakenda eins og má sjá á ráslistanum. Það er alla vega ljóst, að úrtakan fyrir þetta ár er sennilega sú sterkasta frá upphafi KS-deildarinnar.
Keppt er í 4-gangi og 5-gangi og er það samanlagður árangur úr þessum greinum sem telur til stiga í úrtökunni.
Hvetjum við fólk til að koma og horfa á spennandi keppni um þau sex lausu sæti í KS-deildinni 2011. Úrtakan byrjar kl:20:00 (húsið opnar kl:19:30) aðgangseyrir er 1000.- kr. frítt fyrir 12 ára og yngri.
Ráslisti 4-gangur.
1. Magnús Elíasson – Bliki frá Stóru – Ásgeirsá.
2. Hörður Óli Sæmundarson – Hafrún frá Vatnsleysu.
3. Jón Herkovic – Töfrandi frá Árgerði.
4. Ingólfur Pálmason – Höfði frá Sauðárkróki.
5. Sigurður Rúnar Pálsson – Gáski frá Pulu.
6. Riikka Anniina – Gnótt frá Grund.
7. Árni Björn Pálsson – Fura frá Enni.
8. Baldvin Ari Guðlaugsson – Logar frá Möðruvöllum.
9. Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir – Kolgerður frá Vestri-Leyrárgörðum.
10. Guðmundur Þór Elíasson – Fáni frá Efri-Lækjardal.
11. Eyjólfur Þorsteinsson – Hlekkur frá Þingnesi.
Ráslisti 5-gangur.
1. Jón Herkovic – Formúla frá Vatnsleysu.
2. Sigurður Rúnar Pálsson – Glettingur frá Steinnesi.
3. Baldvin Ari Guðlaugsson – Frami frá Efri-Rauðalæk.
4. Riikka Anniina – Styrnir frá Neðri-Vindheimum.
5. Guðmundur Þór Elíasson – Súper-Stjarni frá Stóru-Ásgeirsá.
6. Hörður Óli Sæmundarson – Hreinn frá Vatnsleysu.
7. Magnús Elíasson – Daði frá Stóru-Ásgeirsá.
8. Árni Björn Pálsson – Ofsi frá Stóru-Ásgeirsá.
9. Eyjólfur Þorsteinsson – Ögri frá Baldurshaga.
10. Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir – Rán frá Skefilsstöðum.
11. Ingólfur Pálmason – Tindur frá Miðsitju.
Við minnum knapana sem eru skráðir í úrtökuna á knapafundinn sem verður í Tjarnarbæ kl:19:00 á keppnisdag.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH