Úrtökunni lokið
Hörður Óli Sæmundarson vann sér inn þátttökurétt í Meistaradeild Norðurlands. Hann verður í liðið Hrímnis.
Úrtakan fyrir Meistaradeild Norðurlands 2014 fór fram í gær og unnu fjórir knapar sér réttindi til að keppa með Meistaradeild Norðurlands í vetur. Það voru þau Sölvi Sigurðsson, Hörður Óli Sæmundsson, Arnar Bjarki Sigurðsson og Hlín Mainka Jóhannesdóttir. Jóhann Magnússon og Baldvin Ari Guðlaugsson munu einnig taka þátt í Meistaradeild Norðurlands en þeir höfðu þegar unnið sér þátttökurétt með frammistöðu sinni veturinn 2013.
Úrslit voru eftirfarandi;
1. Sölvi Sigurðarson – 6,48
2. Hörður Óli Sæmundsson – 6,32
3. Arnar Bjarki Sigurðarson – 6,00
4. Hlín Christiane – 5,58
5. Sveinn Brynjar – 5,17
Upplýsingar um liðin og liðaskipan, eins og það liggur fyrir í dag, samkvæmt heimildum Eiðfaxa
Lækjamót – Ísólfur líndal Þórisson – Vigdís Gunnarsdóttir – Sölvi Sigurðsson
Weierholz – Bjarni Jónasson – Sigvaldi Guðmundsson – Jóhann Magnússon
Björg – Fákasport – Viðar Bragason – Þorbjörn H. Matthíasson – Hlín Mainka Jóhannesdóttir
Hrímnir – Þórarinn Eymundsson – Líney María Hjálmarsdóttir – Hörður Óli Sæmundarson
Lið Mette Mannseth Þúfum – Mette Mannseth – Gísli Gíslason – Arnar Bjarki Sigurðsson
Top Reiter – Syðra Skörðugil – Elvar E. Einarsson – Tryggvi Björnsson – Baldvin Ari Guðlaugsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH