Úrtökur fyrir Fáka og fjör
Stórsýningin Fákar og fjör 2012, sem fer fram í TopReiterhöllinni á Akureyri laugardaginn 14. apríl n.k kl. 18:00
Úrtökur fyrir þessa sýningu verða tvær. Föstudaginn 30. mars kl. 17-19 og sunnudaginn 1. apríl kl. 10-12 í TopReiterhöllinni. Hestamenn eru hvattir til að mæta til úrtöku með hross sem þeir telja að eigi erindi á sýninguna. Leitað er eftir klárhrossum, alhliðahrossum, hryssum, stóðhestum og atriðum hvers konar. Tekið er við skráningum á hrossum/atriðum á staðnum og því ekkert nema að mæta.
Nefndin.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH