Útherji til Þýskalands

  • 2. september 2026
  • Fréttir

Útherji og Jóhanna Margrét á Landsmótinu í sumar

Mun auka kyn sitt á Grenzlandhofi

Stóðhesturinn Útherji frá Blesastöðum 1A hefur skipt um eigendur og er nú floginn til Þýskalands en samkvæmt heimildum Eiðfaxa er það hrossaræktandinn Dieter Becker og fjölskylda á Grenzlandhof sem eru nýjir eigendur.

Útherji er 12. vetra gamall og skilur hann eftir sig 107 afkvæmi hér á landi en hann hlaut m.a. 1.verðlaun fyrir afkvæmi á Landsmótinu í sumar hvar hann keppti einnig til A-úrslita í B-flokki gæðinga ásamt Jóhönnu Margréti Snorradóttur.

Ræktandi hans er Magnús Trausti Svavarsson en eigendur hans fram að þessu höfðu verið þau Bragi Guðmundsson, Sveinbjörn Bragason, Valgerður Þorvaldsdóttir og Þórunn Hannesdóttir. Útherji er undan Framherja frá Flagbjarnarholti og Blúndu frá Kílhrauni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link