Úthlutun dómara á mót
Tilkynning til mótshaldara og hestaíþróttadómara:
Frestur til að sækja um dómara til að fá mót skráð löglegt í SportFeng rennur út 1.apríl því þurfa mótshaldarar að hafa hraðar hendur ef ekki hefur verið sótt um dómara. Mótshaldarar sem ekki sækja um fyrir þann tíma verða setja sig í samband við stjórn HÍDÍ til að fá úthlutað dómurum – netfang HÍDÍ er [email protected]
Umsókn um dómara eyðublað má finna inn á heimasíðu LH: http://lhhestar.is/is/page/umsokn-um-domara/
Munið að mót telst ekki löglegt nema dómaranefnd LH og stjórn HÍDÍ úthluti dómurum á mótið og sótt hafi verið um dómara fyrir 1.apríl !! Einkunnir á ólöglegu móti telst ekki til árangurs inn á lista fyrir tölt á landsmóti !
15.apríl Síðasti dagur fyrir dómara að sækja um löglegu mótin sem komin eru inn á heimasíðu HÍDÍ undir tenglinum Dómsstörf í boði.
1. maí. Stjórn HÍDÍ áætlar að úthlutun dómara á þessi mót verði lokið og dómarar látnir vita.
Dómarar – munið að ykkur ber að tilkynna forföll til dómaranefndar/stjórnar HÍDÍ sem sér síðan um að úthluta nýjum dómara.
Minnum dómara og mótshaldara á að fylgjast með fréttum og tilkynningum á heimasíðu HÍDÍ www.hidi.is
Hægt að senda stjórninni tölvupóst á netfangið [email protected].
Kveðja
Stjórn HÍDÍ
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH