Vaki frá Auðsholtshjáleigu og Alberte í A-úrslit
Vaki og Alberte Smith Ljósmynd: Anja Mogensen
Tvö B-úrslit í gæðingakeppni fóru fram nú rétt í þessu í Herning. Annars vegar A-flokki og hinsvegar ungmennaflokki.
Keppni í A-flokki var jöfn og spennandi og munaði ekki miklu á efstu hestum, þrír hestar komust ekki í gegnum skoðun að keppni lokinni sem setti strik í reikninginn, því þar á meðal voru tveir efstu hestarnir.
Sigurvegari er Vaki frá Auðsholtshjáleigu sýndur af Alberte Smith, hlaut hann 8,653 í einkunn. Annar varð Skutull frá Hafsteinsstöðum og Jón Bjarni Smárason, sem keppa fyrir hönd Íslands, með 8,611 í einkunn. Stóðu þeir sig vel í sterkri keppni.
í ungmennaflokki var það Kathrine Eskesen og Hrókur frá Garðshorni sem sigruðu keppinauta sína og áunnu sér keppnisrétt í A-úrslitum.
B-úrslit í A-flokki
| # | Knapi | Hestur | Einkunn |
| 1 | Alberte Smith | Vaki frá Auðsholtshjáleigu | 8,653 |
| 2 | Jón Bjarni Smárason | Skutull frá Hafsteinsstöðum | 8,611 |
| 3 | Laura Nyström | Gilda fra Stenkullagård | 8,578 |
| 4 | Katie Sundin Brumpton | Kolka från Fögruhlíð | 8,540 |
| 5 | Desirée Alameri | Nikulás fra Guldbæk | 8,480 |
| 6 | Berglind Gudmundsdottir | Björn frá Svignaskarði | 8,656* |
| 7 | Johanna Asplund | Boði från Åleby | 8,647* |
| 8 | Arnór Dan Kristinsson | Spaði frá Skarði | 8,416* |
*Hlutu ekki einkunn að skoðun lokinni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH