Landsamband hestamanna Valdís að eiga gott mót

  • 24. júlí 2026
  • Fréttir

Valdís Mist Eyjólfsdóttir og Hnota frá Þingnesi Mynd: Gunnhildur Ýrr

Niðurstöður úr tölti T3 í barnaflokki á Íslandsmóti barna og unglinga

Dagskrá Íslandsmóts barna og unglinga fer nú fram á félagssvæði Sleipnis á Brávöllum á Selfossi. Hægt er að horfa á mótið í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Dagskrá og niðurstöður eru þá aðgengilegar í snjallforriti HorseDay.

Í tölti T3 í barnaflokki er það Valdís Mist Eyjólfsdóttir á Hnotu frá Þingnesi sem stendur efst eftir forkeppni með 6,83 í einkunn. Valdís hefur átt góðu gengi að fagna á mótinu en hún er einnig efst í gæðingatölti og í slaktaumatölti. Í öðru og þriðja sæti eru systkinin Embla Sirén Matthíasdóttir á Flugu frá Garðabæ og Oliver Sirén Matthíasson á Öfga frá Káratanga.

Niðurstöður úr tölti T3 í barnaflokki

Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Valdís Mist Eyjólfsdóttir Hnota frá Þingnesi 6,83
2 Embla Sirén Matthíasdóttir Fluga frá Garðabæ 6,63
3-4 Helga Rún Sigurðardóttir Drottning frá Íbishóli 6,50
3-4 Oliver Sirén Matthíasson Öfgi frá Káratanga 6,50
5 Svala Björk Hlynsdóttir Sigur frá Auðsholtshjáleigu 6,33
6 Jón Guðmundsson Rós frá Blönduósi 6,30
7-8 Þorgeir Nói Jóhannsson Hnokki frá Áslandi 6,17
7-8 Aron Einar Ólafsson Fagur frá Akurprýði 6,17
9-10 Aron Einar Ólafsson Fengsæll frá Jórvík 6,13
9-10 Guðrún Lára Davíðsdóttir List frá Sauðárkróki 6,13
11-15 Eva Hrönn Ásmundsdóttir Ester frá Mosfellsbæ 6,00
11-15 Helgi Hrafn Sigvaldason Fagur frá Kvistum 6,00
11-15 Birna Rós Steinarsdóttir Alma frá Breiðholti í Flóa 6,00
11-15 Aron Einar Ólafsson Hrafnar frá Hvoli 6,00
11-15 Daníel Örn Karlsson Snerra frá Skálakoti 6,00
16 Oliver Sirén Matthíasson Gróa frá Þjóðólfshaga 1 5,97
17 Eva Hrönn Ásmundsdóttir Spyrna frá Strandarhöfði 5,93
18 Aldís Emilía Magnúsdóttir Birting frá Birkihlíð 5,90
19-21 Hrafnar Freyr Leósson Heiðar frá Álfhólum 5,77
19-21 Viktoría Huld Hannesdóttir Suðri frá Varmalandi 5,77
19-21 Hrafnar Freyr Leósson Pandra frá Álfhólum 5,77
22-23 Viðar Ingimarsson Freyr frá Kvistum 5,63
22-23 Bryanna Heaven Brynjarsdóttir Saga frá Dalsholti 5,63
24 Líf Einarsdóttir Isenbuegel Bergvík frá Húsavík 5,43
25 Nadía Líf Kazberuk Sigurey frá Flekkudal 5,33
26 Sara Margrét Holaker Hauksdóttir Ósk frá Skáney 5,23
27 Aryanna Nevaeh Brynjarsdóttir Kraftur frá Laufbrekku 4,57
28 Margrét Sigursteinsdóttir Örvar frá Hóli 3,27

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link