Vallarmót á laugardag

  • 15. ágúst 2011
  • Fréttir

Mynd/dalli.is

Vallarmót á laugardag

Hið árlega Vallarmót verður haldið að Velli við Hvolsvöll laugardaginn 20. ágúst kl. 13 að er fram kemur í tilkynningu frá mótshöldurum.

„Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

Pollaflokk

Barnaflokk

Unglingaflokk

Ungmennaflokk

Opinn flokkur

Tölt opinn flokkur

Unghrossaflokkur

100 m skeið

Bjórreið

EKKERT SKRÁNINGARGJALD

Í pollaflokki er leyfilegt að teyma undir. Í barna, unglinga, ungmenna og opnum flokki er riðið hægt tölt og frjáls ferð.

Töltið er riðið eins og töltkeppni með hraðabreytingum.

Mótshaldarar óska eftir að þátttakendur skrái þáttöku sína fyrir föstudag ef kostur er á netfangið [email protected] og í símum 8923904 – Jón eða 8927178– Arndís.

Annars er einnig skráning á staðnum.

Meðan á mótinu stendur verður boðið uppá grillaðar pylsur og gos eða ávaxtasafa.

Völlur er í Rangárþingi Eystra, 5 km norðan við Hvolsvöll. Frá Hvolsvelli er ekinn Fljótshlíðarvegur rétt út fyrir þorpið, en þar liggur vegur merktur 262 Völlur. Eftir 5km er afleggjari merktur Velli.

Allir eru velkomnir og við hlökkum til að sjá sem flesta.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link