Vann skaðabótamál eftir hestaslys

  • 23. júní 2021
  • Fréttir

Það er mikilvægt að huga að öryggisatriðum þegar leggja á hest á skeið og þá sérstaklega í gegnum reiðhallir

Á vefsíðunni Vísir.is er viðtal við hestakonuna Guðrúnu Rut Hreiðarsdóttur þar sem hún segir frá skaðabótamáli sem hún höfðaði gegn Vátryggingafélagi Íslands eftir slys sem hún lenti í fyrir fimm árum. Í samtali við Vísi segir hún dóminn fordæmisgefandi og staðfesta það að hestamannfélög verði að huga að aðstæðum og merkingum við skipulagðar æfingar.

Slysið átti sér stað í apríl árið 2016 sem samkvæmt vísi gerðist með þeim hætti að hún var að leggja hest sinn í gegnum reiðhöll ónefnd hestamannafélags en þegar hún kom í gegnum hurðarop að loknum skeiðspretti stökk hesturinn upp og beygði upp að húsinu þar sem hann snarstoppaði með þeim afleiðingum að Guðrún þríökklabrotnaði.

Guðrún segist vera fegin að ekki fór verr hjá sér og vonar að dómur þessi verði til þess að hesta­manna­fé­lögin sjái til þess að hlutir sem þessir verði í lagi í fram­tíðinni og komi þannig í veg fyrir slys.

Fréttina í heild sinni má lesa á vefsíðu Vísis með því að smella hér

 

 

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link