Var þitt félag að kaupa aðgang að myndefninu á WF?

  • 31. mars 2020
  • Fréttir

Hestamannafélögin Brimfaxi, Glaður, Grani og Sindri voru að bætast í hóp þeirra félaga sem hafa keypt aðgang fyrir sína félagsmenn að myndböndum frá landsmótum á WorldFeng.

Fyrir eru með aðgang Léttir, Sörli, Sleipnir, Trausti, Kópur, Dreyri, Geysir og Snæfellingur ásamt FHB og sérsamböndum um íslenska hestinn í Svíþjóð, Noregi og Belgíu.

Hestamannafélögum býðst að kaupa aðgang að myndböndunum fyrir sína félagsmenn fyrir 350 kr. á ári fyrir hvern félagsmann 18-69 ára, en almennur aðgangur kostar annars 4.990 á ári fyrir hvern notanda

Nýjasta efnið sem komið er inn á WorldFeng eru stóðhestar frá LM 2002. Hryssur frá 2002 og hryssur og stóðhestar frá LM 2000 komu inn nýlega ásamt stóðhestum, úrslitum í gæðingakeppninni og skeiði frá LM 2011.  Myndefni frá Landsmótunum 2004-2008 kemur svo jafn óðum inn í kjölfarið.

Mikil söguleg verðmæti liggja í myndböndum frá landsmótum liðinna ára, þarna er skrásett saga landsmóta og kynbótasaga íslenska hestsins. Landsmót 1954-1986 eru í nokkrum stuttum þáttum. Landsmótin 2012, 2014, 2016 og 2018 eru klippt og tengd við hvern hest.

Þau félög sem hafa áhuga á að kaupa aðgang að myndefninu fyrir sína félagsmenn geta haft samband við skrifstofu LH á netfangið hjorny@lhhestar.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar