Veglegt jólablað Eiðfaxa – ert þú áskrifandi?
Útigangur að vetrarlagi
Meðal þess sem verður að finna í jólablaðinu eru jólakveðjur og annáll flestra forystumanna í íslenskri hrossarækt.
Þá verður að finna viðamikið viðtal við Jóhann R. Skúlason knapa ársins og þrefaldan heimsmeistara. Páll Stefánsson og Edda Björk Ólafsdóttir á Stuðlum eru hrossaræktendur ársins og verður að finna grein um þeirra ræktun í blaðinu. Þá er viðtal við Benjamín Sand Ingólfsson efnilegasta knapa ársins.
Áfram verður haldið með liðinn Hestamennirnir í landinu þar sem við fáum að fræðast um hestamenn víðsvegar um landið. Á meðal spurninga eru ástæður þess af hverju fólk stundar hestamennsku, hvað verður í matinn á jólunum og margt fleira skemmtilegt.
Bjarney Anna Þórsdóttir var með myndavélina á lofti á uppskeruhátíð hestamanna og Gísli Guðjónsson á Hrossaræktarráðstefnu laugardaginn 2.nóvember og verða mannlífsmyndir frá þessum stóra degi að finna í blaðinu.
Kristinn Hugason heldur áfram að fjalla um hestinn séðan með hans augum og tekur nú fyrir yfirlínu. Háls,herðar og bógar og bak og lend.
Þá mun Einar Ásgeirsson fóðurfræðingur fræða okkur um það hvað þarf að hafa í huga við fóðrun reiðhesta þegar þeir eru teknir á hús.
Forsíðumyndin er í höndum Petru Lönnqvist sem er ung Finnsk kona sem féll fyrir íslenska hestinum. Hún hefur næmt auga fyrir fallegu myndefni. Í blaðinu verður einnig að finna viðtal við hana þar sem hún er spurði út í áhuga sinn á Íslandi og íslenska hestinum.
Fjallað verður um áhugaverðan járningardag sem fór fram í október og viðtal við DR. Simon Curtis sem hélt fyrirlestur af því tilefni. En hann hefur meðal annars gefið út þrjár bækur um járningar og haldið fyrirlestra og sýnikennslur um allan heim.
Þetta og miklu meira í tvöföldu jólablaði Eiðfaxa!!
Þeir sem eru áskrifendur að Eiðfaxa eiga möguleika á að vinna glæsilega vinning en dregið verður úr hópi áskrifenda þann 1.desember.
Fimm heppnir áskrifendur Eiðfaxa eiga möguleika á að vinna.
- Fimm reiðtíma hjá Aðalheiði Önnu
- Toll undir Ölni frá Akranesi
- Ársáskrift af Eiðfaxa
Til þess að gerast áskrifandi sendir þú tölvupóst á netfangið [email protected] þar sem fram kemur nafn, kennitala, heimilisfang. Áskrift kostar 1.690 kr á mánuði.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH