Vegvísir við kynbótadóma 2024

  • 24. maí 2024
  • Fréttir
Gott er að kynna sér vegvísinn fyrir kynbótadóma 2024 en sýningar hefjast í næstu viku.

Ráðgjafarmiðstöð Landbúnaðarins vill vekja athygli á því að Vegvísir við kynbótadóma fyrir árið 2024 er aðgengilegur öllum á heimasíðu RML.

Vegvísirinn inniheldur allar helstu upplýsingar varðandi hvað bera að hafa í huga við dóma og framkvæmd kynbótasýninga. Í honum má finna helstu reglur sem gilda um framkvæmdina, vinnureglur FEIF við kynbótadóma sem og stigunarkvarða einstaklingsdóma. RML hvetur sýnendur og aðstandendur hrossa að kynna sér Vegvísinn fyrir sýningar sumarsins.

Kynbótasýningar hefjast í næstu viku en síðasti skráningardagur á vorsýningar er í dag er enn laust pláss á nokkrum sýningum.

Um kynbótasýningar 2024
Skráning á kynbótasýningu

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link