Verða haldin tvö Fjórðungsmót árið 2013?

  • 16. september 2011
  • Fréttir
Verða haldin tvö Fjórðungsmót árið 2013?

Fjórðungsmót eru haldin annað hvert ár á móti Landsmótsári og hafa Austlendingar og Vestlendingar skipst á að halda mótin.  Árið 2007 var mótið haldið á Stekkhólma á Héraði, árið 2009 á Kaldármelum og var það því í höndum Austlendinga að halda mótið í ár í Hornafirði. Af því var þó ekki, því stjórn hestamannafélagsins Hornfirðings ákvað að aflýsa því þegar ljóst varð að Landsmót yrði haldið á Vindheimamelum eftir færslu þess um eitt ár.

Því er komin upp óvissustaða á Austurlandi. Velta Austlendingar því nú því fyrir sér hvort halda eigi Fjórðungsmót Austurlands árið 2013, sama ár Fjórðungsmót Vesturlands verður haldið, eða hvort aðstandendur mótsins á Austurlandi eigi að bíða í fjögur ár til viðbótar. Einnig velta menn fyrir sér hvernig hægt sé að efla mótin svo þau skapi meira aðdráttarafl fyrir keppendur og áhorfendur en Austlendingar hafa löngum átt undir nokkru höggi að sækja er kemur að mótshaldi.

Lítið samráð hefur verið á milli austurs og vesturs varðandi fyrirkomulag Fjórðungsmóta hingað til en málefni þeirra voru þó rædd á fundum Landsmótsnefndar á Höfn og á Hvanneyri í mánuðinum.

Pálmi Guðmundsson er stjórnarmaður hjá hestamannafélaginu Hornfirðingi og sat fundinn á Höfn. Hann telur skynsamlegt að menn velti fyrir sér hvernig eigi að bregðast við, ef sama staða kemur upp aftur í framtíðinni og segist hafa viðrað þá hugmynd að í stað þess færa Landsmótið myndu Fjórðungsmótin vera efld til muna. „Ef Landssambandið myndi efla það Fjórðungsmót sem áætlað árinu eftir aflýst Landsmót yrði ekki brotið á Fjórðungsmótinu né Heimsmeistaramótinu,“ segir hann en engin formleg ákvörðun hefur verið tekin um hvort Austlendingar muni halda Fjórðungsmót á næsta ári.

Marteinn Valdimarsson, formaður Skugga í Borgarnesi, segir að á fundinum á Hvanneyri hafi menn talið í lagi að halda tvö mót. „Takmarkaður fjöldi hrossa eiga kost á að komast á mótin miðað við landssvæðin og ég held því að það myndi ekki hafa mikil áhrif á mótin þó þau yrðu bæði haldin á sama ári.“ Hann segir jafnframt það hafi haft góð áhrif á Fjórðungsmót Vesturlands þegar ákveðið var að bjóða fleirum þátttöku árið 2009. „Öllum hestamannafélögum frá Kjós að Tröllaskaga var boðið að vera með. Það mæltist vel fyrir og ég held að mótið hafi verið betra í alla staði fyrir vikið.“

Á sama hátt var hestamannafélögum á Norð-Austurlandi boðin þátttaka á Fjórðungsmóti Austurlands 2007. Nú hafa komið upp hugmyndir að efla næsta Fjórðungsmót á Hornafirði með því að bjóða Sunnlendingum þátttöku. Pálmi segist jafnvel vilja ganga svo langt að leggja til að Fjórðungsmót Austurlands verði haldið til skiptis á Hornafirði og á Hellu, í stað þess að halda það á Iðavöllum á Héraði. Hann segist hafa rætt þetta óformlega við ýmsa aðila á Austurlandi og segir skiptar skoðanir um málið. „Umræður eru til alls fyrst. Ég vil reyna að þróa og styrkja Fjórðungsmótin og finna leiðir til að tryggja tilveru þeirra,“ segir hann og bætir við að sér finnst full ástæða til að gera könnun á því hvernig best væri að standa að mótunum og hvernig hestamenn sjái þau fyrir sér. „Fjórðungsmótin hafa sérstöðu sem við ættum að upphefja. Þau eru öðruvísi en Landsmót, að því leiti að þau eru ekki jafn fastbundinn. Þau eru styttri og formið er léttara. Á mótunum ríkir afslappað andrúmsloft, farið er í útreiðartúra saman og sveitarómantíkin er í hávegum höfð.“

Á fundinum á Höfn kom ennfremur fram að málefni Fjórðungsmóta yrðu tekin upp á Formannafundi LH sem haldinn verður 4. nóvember nk.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link