,,Verðið þótti brjálæðislegt“
Hjónin Jóhann Þorsteinsson og Sólveig Stefánsdóttir á alsystkinunum Tinnu og Kveik frá Miðsitju í afkvæmasýningu Perlu frá Reykjum á LM1990
Nýjasta tímarit Eiðfaxa er nú farið í prentvélarnar, stútfullt af skemmtilegu efni og fróðleik.
Í tímaritinu er m.a. að finna viðamikið viðtal við Sólveigu Stefánsdóttir sem er hestamönnum öllum að góðu kunn en hún ræktaði hross að Miðsitju í Skagafirði ásamt Jóhanni Þorsteinssyni manni sínum, sem jafnan er þekktur undir sæmdarheitinu Jói Vakri.
Í viðtalinu kemur ýmislegt fram og til þess að gefa áskrifendum Eiðfaxa forsmekk af því sem koma skal grípum við niður í viðtalið þar sem Sólveig lýsir því hvernig þau Jói eignuðust hryssuna Kröflu frá Sauðárkróki.
Á sama tíma og þau Solla og Jói eru að kaupa Miðsitju festa þau kaup á hryssunni Kröflu frá Sauðárkróki sem átti heldur betur eftir að reynast þeim vel í hrossaræktinni. Aðdraganda að kaupum þeim lýsir Sólveig á þennan hátt. „Það má segja að við höfum verið heppin að veðja á réttan hest í upphafi. Við vorum búin að taka eftir þessu tryppi þá tveggja vetra gömlu á sjúkrahústúninu svokölluðu á Sauðárkróki, þar sem hún var ásamt fleiri hrossum frá Árna Gunnarssyni ræktanda Kröflu. Ég vann á sjúkrahúsinu hálfan daginn við gluggann sem vísaði út á túnið og var starsýnt á þetta tryppi, hún var svo svakalega hreyfingafalleg og fasmikil. Hinn helming dagsins vann ég í verslun. Jói kemur svo til mín einn daginn og segir að Kóki (Herbert Ólason) sé að bera víurnar í tryppið sem okkur langaði svo í, þá vorum við búin að selja íbúðarhúsið og kaupa Miðsitju. Við áttum því ekki mikið á milli handanna en ég segi við Jóa farðu og kauptu hana. Verðið þótti brjálæðislegt fyrir tveggja vetra tryppi og við eyddum í raun restinni af lausafénu í Kröflu, en þetta voru nú bara peningar.
Tryggðu þér áskrift að Eiðfaxa, fáðu hann sendan heim að dyrum og styddu um leið við faglega umfjöllun um íslenska hestinn og allt það sem honum tengist með því að smella hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH